Mikill vöxtur í hugverkaiðnaði, sjávarútvegi og álframleiðslu

Samhliða veikari krónu hafa tekjur í helstu útflutningsgreinum okkar, að ferðaþjónustunni undanskilinni, aukist töluvert á síðustu mánuðum. Hugverkaiðnaður er nú orðin næst stærsta útflutningsgrein landsins.

Velta í sjávarútvegi frá janúar til september var meiri í ár heldur en nokkru sinni fyrr.
Velta í sjávarútvegi frá janúar til september var meiri í ár heldur en nokkru sinni fyrr.
Auglýsing

Heild­ar­veltan í sjáv­ar­út­vegi, álf­ram­leiðslu og hug­verka­iðn­aði á fyrstu átta mán­uðum árs­ins er nú tæpum fimmt­ungi hærri en hún var á sama tíma í fyrra og 15 pró­sentum hærri en á sama tíma­bili árið 2019, sam­kvæmt nýbirtum tölum Hag­stofu. Ef miðað er við veltu í atvinnu­grein­unum frá jan­úar til sept­em­ber í ár er hug­verka­iðn­aður næst stærsta útflutn­ings­grein lands­ins, á eftir sjáv­ar­út­vegi.

Krónan enn veik­ari en 2019

Gengi íslensku krón­unnar hefur tekið nokkrum sveiflum á þessu tíma­bili, en það var um níu pró­sentum lægra frá jan­úar til sept­em­ber í fyrra en það var á sama tíma­bili árið 2018, sam­kvæmt geng­is­skrán­ingu Seðla­bank­ans.

Síðan þá hefur veik­ing krón­unnar gengið að ein­hverju leyti til baka, en í ágúst var hún þó enn sjö pró­sentum veik­ari en hún var í sama mán­uði árið 2019.

Auglýsing

Sjáv­ar­út­vegur stærst­ur, svo hug­verka­iðn­aður

Á meðan krónan hefur veikst hefur veltan í helstu útflutn­ings­grein­unum að ferða­þjón­ust­unni und­an­skil­inni, það er að segja sjáv­ar­út­vegs, hug­verka­iðn­aðar og álf­ram­leiðslu, auk­ist stöðugt. Sam­kvæmt veltu­tölum Hag­stofu hefur sjáv­ar­út­vegur verið stærsta útflutn­ings­greinin það sem af er ári, en hann velti 283 millj­örðum króna frá jan­úar til sept­em­ber.

Tækni- og hug­verka­iðn­að­ur­inn er hins vegar ekki langt und­an, en veltan í þeim atvinnu­flokki nam 259 millj­örðum króna á sama tíma. Í þriðja sætið kemur svo ferða­þjón­ustan með 225 millj­arða króna veltu á fyrstu átta mán­uðum árs­ins, en álf­ram­leiðslan er í því fjórða með 184 millj­arða króna veltu.

Sam­an­lögð velta álf­ram­leiðslu, hug­verka­iðn­aðar og sjáv­ar­út­vegs­ins á þessu tíma­bili var 18 pró­sentum hærra en á sama tíma í fyrra. Umfang þess­ara greina hefur ekki auk­ist jafn mikið á þessu tíma­bili á síð­ustu tíu árum, en til sam­an­burðar dróst heild­ar­velta þeirra saman um tvö pró­sent í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent