Minni útgjöld í húsnæðismál þrátt fyrir framboðsskort

Samkvæmt stjórnvöldum er framboðsskortur á húsnæðismarkaði sem mikilvægt er að koma í veg fyrir. Hins vegar hyggst ríkisstjórnin ætla að draga úr stuðningi sínum í húsnæðismálum, ef tekið er tillit til verðbólgu.

img_4557_raw_0710130526_10191295274_o.jpg
Auglýsing

Rík­is­stjórnin segir að auka þurfi fram­boð íbúða til að mæta upp­safn­aðri og fyr­ir­sjá­an­legri þörf á hús­næð­is­mark­aði. Þrátt fyrir það munu opin­ber fram­lög til hús­næð­is- og skipu­lags­mála, sem veitt eru til að tryggja fram­boð íbúða fyrir við­kvæma hópa, drag­ast saman um átta pró­sent að raun­virði á næsta ári. Þetta kemur fram í nýrri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem kom út á þriðju­dag­inn.

Vilja tryggja öruggt fram­boð

Sam­kvæmt áætl­un­inni gegnir hús­næð­is­stuðn­ingur hins opin­bera mik­il­vægu hlut­verki í að tryggja fram­boð íbúða hvort sem er til eignar eða leigu fyrir við­kvæma hópa á hús­næð­is­mark­aði. Við­var­andi skortur á hús­næði leiði til óstöð­ug­leika í efna­hags­stjórn og verð­hækk­ana, en það hafi nei­kvæð áhrif á fjár­hag heim­il­anna.

Stjórn­völd segja það vera mik­il­vægt að bæta aðstæður á hús­næð­is­mark­aði, en til þess hafi verið skip­aður starfs­hóp­ur, sem á meðal ann­ars að fjalla um leiðir til að auka fram­boð á hús­næði. Á meðal aðgerða sem koma til skoð­unar eru stofn­fram­lög til óhagn­að­ar­drif­inna hús­næð­is­fé­laga, en einnig stuðn­ingur til félags­legra eign­ar- og kaup­leigu­í­búða.

Auglýsing

Dregið úr stuðn­ingi

Fyrir tveimur árum síðan námu heild­ar­út­gjöld í hús­næð­is- og skipu­lags­mál 15,8 millj­örðum á núver­andi verð­lagi. Á mynd hér að neðan er stuðn­ingur síð­ustu ára bor­inn saman við væntan stuðn­ing á næstu árum, miðað við útgjald­ara­mmann í fjár­mála­á­ætl­un­inni, en líkt og sést á henni henni nemur hann 16,3 millj­örðum króna í ár.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Stjórnarráðið.

Á næstu árum verða svo fjár­heim­ild­irnar til nefnd­ar­sviðs­ins tæp­lega 15 millj­arðar króna að raun­virði, en það er sam­dráttur sem jafn­gildir rúmum átta pró­sentum frá útgjöldum þessa árs.

Vonar að áætl­un­inni verði kastað út í hafs­auga

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vakti athygli á minnk­andi stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar til hús­næð­is­mála á Alþingi á þriðju­dag­inn, en þar sagði hann að rík­is­stjórnin ætl­aði að lækka stofn­fram­lög til almenna íbúða­kerf­is­ins um tvo millj­arða króna. Með því væri hún að fram­kalla sam­drátt í fram­boði af félags­legu hús­næði með handafli.

Sam­kvæmt Jóhanni er þessi sam­dráttur „al­gjör­lega úr takti við það sem hefur lagt hér upp með og það sem var talað um í kosn­inga­bar­átt­unni í haust,“ líkt og mbl.is greinir frá. „Ég vona að þess­ari fjár­mála­á­ætlun verði nú bara kastað eitt­hvert út í hafs­auga og ný lögð fram,“ sagði hann einnig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent