Misjafnt hvort lífeyrissjóðir byrja strax að horfa til nýs fasteignamats við lánavinnslu

Af sjö lífeyrissjóðum sem svöruðu fyrirspurn Kjarnans um hvort þeir tækju nýtt fasteignamat strax inn í lánavinnslu sína segjast þrír þeirra ætla að gera það nú þegar en fjórir ætla að bíða fram í desember eða janúar.

Misjafnt er hvort lífeyrissjóðir séu byrjaðir að taka mið af fasteignamati 2023 við vinnslu húsnæðislána.
Misjafnt er hvort lífeyrissjóðir séu byrjaðir að taka mið af fasteignamati 2023 við vinnslu húsnæðislána.
Auglýsing

Allur gangur er á því er hvort líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem lána ein­stak­lingum fyrir hús­næð­is­kaup­um, séu byrj­aðir að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023 við vinnslu fast­eigna­lána. Kjarn­inn sendi út fyr­ir­spurnir á flesta líf­eyr­is­sjóði sem lána fyrir hús­næð­is­kaupum og spurði hvort sjóð­ur­inn væri byrj­aður að horfa til nýja fast­eigna­mats­ins við vinnslu fast­eigna­lána og end­ur­fjár­magn­an­ir. Svör bár­ust frá sjö sjóð­um.

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna (LV), Brú og Lífs­verk eru allir nú þegar byrj­aðir til að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023 við lána­vinnslu sína. Í svari frá LV segir að þetta hafi verið gert síð­ustu ár.

„Þetta hefur stundum verið rætt og nið­ur­staðan ávallt verið sú að gera það frá því að það er birt þar sem fast­eigna­mat næsta árs end­ur­speglar alltaf raun­virði fast­eigna,“ segir í svari sjóðs­ins til Kjarn­ans.

Auglýsing

Í svörum frá Brú og Lífs­verki var vísað til til­kynn­inga á vefjum sjóð­anna um að sjóð­irnir horfi til nýja fast­eigna­mats­ins við lán­veit­ing­ar.

En ekki allir sjóð­irnir fara eins að. Í svari frá Birtu líf­eyr­is­sjóði segir að horft sé til þess að byrja að horfa til nýs fast­eigna­mats 1. des­em­ber næst­kom­andi.

„Birta hefur und­an­farin ár byrjað að styðj­ast við fast­eigna­mat næsta árs 1. des­em­ber ár hvert. Sjóð­ur­inn styðst við fast­eigna­mat í end­ur­fjár­mögn­un­ar­málum og við kaup­verð í fast­eigna­við­skipt­um, með ákveðnum hlið­ar­skil­yrðum varð­andi lóða- og bruna­bóta­mat. Ég geri ráð að við­mið­un­ar­dag­setn­ingin í ár verði líka 1. des­em­ber, en þá hefur kæru­frestur vegna nýs fast­eigna­mats runnið út,“ segir Sig­ur­björn Ein­ars­son lána­stjóri sjóðs­ins í skrif­legu svari til Kjarn­ans.

Bæði LSR og Festa líf­eyr­is­sjóður segj­ast svo lána sam­kvæmt gild­andi fast­eigna­mati hverju sinni og að þeir byrji þess vegna ekki að miða við fast­eigna­mat 2023 fyrr en þann 1. jan­úar 2023. Gild­i-líf­eyr­is­sjóður segir að eins og staðan sé í dag muni sjóð­ur­inn „ekki miða við fast­eigna­mat 2023 fyrr en í byrjun árs 2023.“

Bank­arnir þrír ekki allir á sömu línu

Eins og Kjarn­inn sagði frá á fimmtu­dag­inn eru það ekki bara líf­eyr­is­sjóð­irnir sem mæta breyttu fast­eigna­mati með mis­mun­andi hætti, heldur líka stóru við­skipta­bank­arnir þrír.

Þar sker Íslands­banki sig frá hinum tveim­ur, Lands­bank­ans og Arion banka, með því að vera eini bank­inn sem ætlar ekki nú þegar að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023 við lána­vinnslu sína, heldur bíða til gild­is­töku nýja fast­eigna­mats­ins.

Nýja fast­eigna­matið er hart­nær 20 pró­sentum hærra en núgild­andi fast­eigna­mat að með­al­tali, eftir miklar hækk­unar hús­næð­is­verðs um land allt und­an­farin miss­eri.

Ein­hverjir lán­takar gætu nú horft til þess að nýta hið aukna veð­rými sem mynd­ast við hækkun fast­eigna­mats til þess að end­ur­fjár­magna lán sín, en við­skipta­vinir Íslands­banka þurfa öfugt við við­skipta­vini Arion banka og Lands­bank­ans að bíða með það fram yfir næstu ára­mót.

Fréttin var upp­færð með svari frá Gild­i-líf­eyr­is­sjóði, sem barst eftir að fréttin fór fyrst í loft­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent