Mun hætta sem aðstoðarmaður ráðherra hljóti hann kjör í stjórn Festi

Aðstoðarmaður háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráherra, sem sækist eftir setu í stjórn Festi, segir að slík stjórnarseta samræmist ekki nýlegum lögum um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands – það sé alveg skýrt.

Magnús Júlíusson aðstoðarmaður háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráherra.
Magnús Júlíusson aðstoðarmaður háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráherra.
Auglýsing

Magnús Júl­í­us­son, aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sæk­ist eftir stjórn­ar­setu í Festi en til­nefn­ing­ar­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins hefur til­nefnt níu í stjórn félags­ins fyrir kom­andi hlut­hafa­fund þann 14. júlí næst­kom­andi og er Magnús á meðal þeirra.

Hann tók nýlega sæti í stjórn Rio Tinto á Íslandi sem full­trúi rík­is­ins en hann segir í sam­tali við Kjarn­ann að eðli­legt sé að aðstoð­ar­menn sinni slíkri stjórn­ar­setu ef hún er á vegum rík­is­ins og ekki sé greitt fyrir hana sér­stak­lega. Önnur stjórn­ar­seta sé það ekki.

Í nýlegum lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands segir að störf æðstu stjórn­enda og aðstoð­ar­manna ráð­herra telj­ist full störf. Þeim sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða störfum í Stjórn­ar­ráði Íslands.

Auglýsing

Sam­kvæmt lög­unum getur ráð­herra veitt und­an­þágu ef fyr­ir­hugað auka­starf telst til mann­úð­ar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vís­inda­rann­sókna, list­sköp­unar eða ann­arra og til­fallandi starfa svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf við­kom­andi í Stjórn­ar­ráði Íslands og greiðslur fyrir auka­störfin telj­ast innan hóf­legra marka.

„Það er alveg skýrt að þetta fer ekki sam­an“

Magnús segir að stjórn­ar­seta í Festi sam­ræm­ist ekki þessum lög­um. „Það er alveg ljóst að stjórn­ar­seta í Festi fer ekki saman við starf aðstoð­ar­manns, ef af því yrð­i.“

Þegar hann er spurður hvort hann ætli þá að hætta sem aðstoð­ar­maður ráð­herra ef hann færi í stjórn Festi þá segir hann að lögin séu alveg skýr með það að und­an­þágan í lög­unum gildi ekki um stjórn­ar­setu í Festi. Und­an­þágan sem hægt er að fá sam­kvæmt lögum gildi ein­ungis um ákveðin störf eins og áður seg­ir. „Það er alveg skýrt að þetta fer ekki saman og ég mun hætta sem aðstoð­ar­maður hljóti ég kjör í stjórn­ina.“

Festi greiddi yfir 700 millj­ónir fyrir Íslenska orku­miðlun

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Festis segir að til­nefn­ing Magn­úsar til stjórn­ar­setu byggi á því að hann hafi mikla þekk­ingu á orku­mark­aði, sjálf­bærni, umhverf­is­mál­um, stjórn­sýslu og upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja.

Þar er byggt á því að Magnús stofn­aði á sínum tíma, ásamt fjár­fest­inum Bjarna Ármanns­syni, félagið Íslensk orku­miðlun sem byrj­aði að selja íslenskum neyt­endum raf­orku árið 2017. Ásamt Bjarna og Magn­úsi voru hlut­hafar Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lag Vest­manna­eyja og síðar Festi. Festi keypti félagið síðan að fullu undir lok árs 2020 og greiddi 722,5 millj­ónir króna fyrir félag­ið, sem síðar féll undir N1 og fékk síðla árs 2021 nafnið N1 Raf­magn.

Verð­matið á félag­inu á þeim tíma er það var selt var alls 850 millj­ónir króna, sem vakti nokkra athygli, enda var hátt í 70 pró­sent af bók­færðu virði félags­ins óefn­is­legar eignir í formi við­skipta­vild­ar. Ekki lá fyrir í hverju nákvæm­lega þessu verð­mæta við­skipta­vild fælist.

Stundin fjall­aði um náin tengsl lyk­il­leik­enda í þessum við­skiptum þegar þau áttu sér stað, en Egg­ert Þór Krist­ó­fers­son. sem nýlega var sagt upp störfum sem for­stjóra Festi, er vinur og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi Bjarna Ármanns­son­ar, og var á árum áður fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags Bjarna, sem er einmitt sama fyr­ir­tæki og Festi keypti hlut­inn í Íslenskri orku­miðlun af.

Þáver­andi stjórn­ar­for­maður Festi, Þórður Már Jóhann­es­son, sem lét af störfum fyrr á þessu ári í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­brot, hefur einnig verið við­skipta­fé­lagi Bjarna og þekkt hann frá því á upp­vaxt­ar­árum þeirra á Akra­nesi, eins og blogg­ar­inn Guð­mundur Hörður Guð­munds­son vakti athygli á í færslu sinni um mál­ið, sem sett var fram undir fyr­ir­sögn­inni „Vin­sam­legt verð­mat“.

Sjáv­ar­sýn, fjár­fest­inga­fé­lag Bjarna, á 1,03 pró­sent hlut í Festi. Magnús var um tíma deild­ar­stjóri orku­sviðs N1 eftir kaup Festis á Íslenskri orku­miðl­un. Hann hætti störfum í lok síð­asta árs og tók við sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu fyrr á þessu ári.

Tveir full­trúar í stjórn Rio Tinto á vegum íslenska rík­is­ins

Magnús tók sæti í stjórn Rio Tinto á Íslandi í maí síð­ast­liðnum og segir hann við Kjarn­ann að sú stjórn­ar­seta sé út frá stofn­samn­ingi við ríkið þar sem ríkið skipar full­trúa.

Á vef Rio Tinto á Íslandi kemur fram að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins sé skipuð sjö ein­stak­ling­um. Fjórir stjórn­ar­menn auk stjórn­ar­for­manns sitja í stjórn­inni fyrir hönd eig­enda en rík­is­stjórn Íslands á tvo full­trúa í stjórn­inni sam­kvæmt upp­haf­legum samn­ingi við stjórn­völd um stofnun fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég er í stjórn­inni sem full­trúi íslenska rík­is­ins, til­nefndur af ráð­herra, og þar hafa verið skrif­stofu­stjórar og ýmsir verið í gegnum tíð­ina.“ Hann segir að það sé partur af hlut­verki rík­is­ins að vera með stjórn­ar­mann þar.

Hann seg­ist ekki sjá að um hags­muna­á­rekstur sé að ræða að vera stjórn­ar­maður í Rio Tinto og aðstoð­ar­maður iðn­að­ar­ráð­herra. „Það hefur ekki verið talin ástæða fyrir því hingað til,“ segir hann og bendir á að samn­ingur rík­is­ins við Rio Tinto hafi verið gerður fyrir rúmum 50 árum síðan og renni sitt skeið á næstu árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent