N1 Rafmagn segist taka mark á þeim athugasemdum sem gerðar hafa verið við tvöfalda verðlagningingu fyrirtækisins á raforku í opinberri umræðu undanfarna tvo daga og biðst fyrirtækið „velvirðingar á því að hafa ekki gert það fyrr,“ í yfirlýsingu sem Hinrik Örn Bjarnason framkvæmdastjóri N1 sendi frá sér á sjöunda tímanum í kvöld.
Fyrirtækið segist ætla að selja alla raforku til heimila samkvæmt uppgefnum taxta til allra sinna viðskiptavina, sama hvort þeir hafi skráð sig í viðskipti eða komið í viðskipti óafvitandi í gegnum þrautavaraleiðina svokölluðu. Fyrirtækið segist jafnframt ætla að endurgreiða mismun á uppgefnum taxta og þrautavarataxta aftur til 1. nóvember síðastliðins.
Í yfirlýsingu N1 segir að það hafi aldrei verið ætlunin að blekkja neytendur á nokkurn hátt og að fyrirtækinu þyki leitt ef neytendur túlki það svo. „Vegna skyndilegrar innkomu þrautavaraviðskipta til fyrirtækisins, þurfti N1 Rafmagn að kaupa orku handa þessum hópi á skammtímamarkaði þar sem verð eru afar breytileg og hafa hækkað ört á síðustu misserum,“ segir í yfirlýsingunni frá N1.
Þar er því bætt við að N1 Rafmagn hafi á engum tímapunkti „fengið mismun á uppgefnum taxta samkvæmt verðskrá og þrautavarataxta í sinn vasa“, heldur hafi Landsvirkjun, sem selur N1 orku á skammtímamarkaði „á mun dýrara verði en til langs tíma“, fengið mismuninn í vasann.
Fyrirtækið segist hvetja Orkustofnun eindregið til að hraða vinnu sinni varðandi þær kvaðir sem orkusali til þrautavara þarf að undirgangast og segir í yfirlýsingunni að það sé erfitt fyrir þann orkusala sem verður fyrir valinu að gera ráð fyrir þessum hóp í langtímaviðskiptum sínum við birgja.
„Taka þarf inn í myndina ófyrirsjáanlegar verðsveiflur á orkumarkaði og getu orkusalans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjörum,“ segir í yfirlýsingu N1 Rafmagns.
Yfirlýsing N1 í heild sinni má lesa hér að neðan
Í ljósi umræðu síðustu tveggja daga varðandi N1 Rafmagn sem söluaðila til þrautavara, vill N1 Rafmagn koma eftirfarandi á framfæri.
Ákveðið hefur verið að frá og með 1. janúar 2022 muni N1 Rafmagn selja alla raforku til heimila samkvæmt uppgefnum taxta til allra okkar viðskiptavina, hvort sem þeir hafa skráð sig í viðskipti hjá okkur eða koma í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda. Jafnframt hefur verið ákveðið að endurgreiða mismun á uppgefnum taxta og þrautavarataxta frá 1. nóvember síðastliðnum þegar félagið var valið af Orkustofnun til að sinna þessu hlutverki. Við störfum á neytendamarkaði og tökum mark á þeim athugasemdum sem okkur berast og biðjumst velvirðingar á því að hafa ekki gert það fyrr.
Aldrei var ætlunin að blekkja neytendur á nokkurn hátt og þykir okkur leitt ef neytendur túlka það svo. Vegna skyndilegrar innkomu þrautavaraviðskipta til fyrirtækisins, þurfti N1 Rafmagn að kaupa orku handa þessum hópi á skammtímamarkaði þar sem verð eru afar breytileg og hafa hækkað ört á síðustu misserum. Því skal haldið til haga að N1 Rafmagn hefur á engum tímapunkti fengið mismun á uppgefnum taxta samkvæmt verðskrá og þrautavarataxta í sinn vasa, heldur Landsvirkjun sem selur orku á skammtímamarkaði á mun dýrara verði en til langs tíma.
Á sama tíma hvetjum við Orkustofnun eindregið til að hraða vinnu sinni hvað varðar þær kvaðir sem orkusali til þrautavara þarf að undirgangast þar sem erfitt er fyrir þann sem fyrir valinu verður að gera ráð fyrir þessum hóp í langtímaviðskiptum sínum við birgja. Taka þarf inn í myndina ófyrirsjáanlegar verðsveiflur á orkumarkaði og getu orkusalans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjörum.
Við fögnum virkri samkeppni og munum nú sem áður þjónusta okkar viðskiptavini með það að leiðarljósi að bjóða lægsta verð hverju sinni. (Sjá https://aurbjorg.is/rafmagn). Við hvetjum alla neytendur til að skrá sig sjálfa hjá þeim orkusala sem þeir kjósa, án aðkomu stjórnvalda.
Virðingarfyllst,
Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1