Atli Fannar Bjarkason, ristjóri Nútímans, er vefhetja ársins 2015 á Nexpo verðlaununum sem haldin var í kvöld. Verðlaunin voru veitt í Bíó Paradís við hátíðlega athöfn. Vef- og markaðsfólk var í fyrirrúmi á Nexpo í ár, en því til viðbótar var lögð sérstök áhersla á nýsköpun á Íslandi.
Að því tilefni voru veitt verðlaun í tveimur nýjum verðlaunaflokkum. Sprotafyrirtæki ársins var valið og besti markaðsárangur sprotafyrirtækis sömuleiðis. QuizUp-fyrirtækið Plain Vanilla vann í flokkunum sprotafyrirtæki ársins og Meniga í flokknum besti markaðsárangur sprotafyrirtækis.
Lesendum Kjarnans gafst kostur á að kjósa um fimm tilnefningar í átta flokkum hér á vefnum í liðinni viku. Áður hafði netverjum gefist kostur á að tilnefna þá sem þeim þótti skara framúr á liðnu ári. Sérstök dómnefnd tók þá við tilnefningunum og valdi þá fimm sem þóttu eiga verðlaunin skilið.
Verðlaunahafar Nexpo 2015
Vefhetja ársins er Atli Fannar Bjarkason. Honum einum tókst að koma nýjum fjölmiðli í loftið sem er ætlaður fyrir ungt fólk. Nútíminn fór í loftið 25. ágúst 2014 og hefur sprungið út síðan.
App ársins er Strætó appið frá Strætó BS. Gamla appið var rækilega tekið í gegn og útlitið bætt, en helsta viðbótin var greiðslumöguleiki í appinu. Notendur þurfa ekki lengur að vera með klink eða strætómiða og geta því nýtt snjallsímann til þess að greiða fargjöld.
Vefur ársins er Blær.is. Vefurinn þykir einstaklega vel hannaður og nýtir nútímatækni til þess að birta áhugavert efni. Blær virkar á öllum tækjum án þess að efnið líði fyrir það.
Herferð ársins er Heim um jólin frá Icelandair, þar sem spilað var á tilfinningar áhorfenda. Ekki var annað hægt en að tárast örlítið undir lok auglýsingarinnar.
Verðlaun fyrir stafrænt markaðsstarf ársins fékk Nova fyrir Nova Snap. Notkun Nova á nýmiðlinum Snapchat þykir einstaklega frumlegur, en þar sáu þjóðkunnir einstaklingar um að skemmta landsmönnum í stuttum 5-10 sekúndna myndbrotum.
Óhefðbunda auglýsing ársins er Örugg borg frá UN Women á Íslandi. Augýsingin sýndi óhugnalegan raunveruleika byggðan á reynslusögum kvenna um allan heim á nýstárlegan hátt, þar sem áhorfendur upplifðu tvær hliðar samtímis með því að tengja snjallsímann við myndbandið.
Plain Vanilla vann í flokkinum sprotafyrirtæki ársins. Plain Vanilla hefur farið siguför um heiminn með ávanabindandi appinu QuizUp og hefur verið í samstarfi við fyrirtæki eins og Coca-Cola í kringum HM í fótbolta og HBO í tengslum við Game of Thrones.
Dómnefndin valdi svo Meniga fyrir besta markaðsárangur sprotafyrirtækis. Meniga bætti nýju appi í þjónustuflóru sína á árinu og þar sem notandinn getur fundið betri kjör í nágrenni sínu.