Niðurstaða siðanefndar RÚV hefur ekki áhrif á störf Helga Seljan

Fréttastofa RÚV stendur við allan fréttaflutning af málefnum Samherja. Niðurstaða siðanefndar RÚV vegna kæru fyrirtækisins á hendur ellefu starfsmönnum fjölmiðilsins er sú að tíu þeirra hafi ekki brotið siðareglur.

Helgi Seljan
Helgi Seljan
Auglýsing

Frétta­stofa RÚV stendur við allan frétta­flutn­ing af mál­efnum Sam­herja og mun halda áfram að fjalla um fyr­ir­tækið eins og til­efni er til. Siða­nefnd RÚV birti fyrr í dag nið­ur­stöðu sína í kæru­máli Sam­herja gegn ell­efu starfs­mönnum RÚV vegna ummæla sem þeir létu falla á sam­fé­lags­miðl­um.

Í nið­ur­stöð­unni var mála­til­bún­aði gegn tíu starfs­mönnum RÚV vísað frá eða ummæli þeirra ekki talin brot á siða­reglum RÚV. Einn starfs­mað­ur, Helgi Selj­an, var tal­inn hafa gerst brot­legur við siða­reglur með alvar­legum hætti vegna nokk­urra ummæla sem hann lét falla á sam­fé­lags­miðl­um. Önnur ummæli hans sem kærð voru voru það hins vegar ekki.

Auglýsing
Í yfir­lýs­ingu sem birt hefur verið á vef RÚV segir að nið­ur­staða ­nefnd­ar­innar sé skýr og ótví­ræð varð­andi tíu af ell­efu starfs­mönnum RÚV. Þar sé kærum ýmist vísað frá nefnd­inni eða nið­ur­staðan er að ummælin telj­ist ekki brot á siða­reglum RÚV. „Að mati siða­nefnd­ar­innar hefur einn starfs­mað­ur, Helgi Seljan frétta­mað­ur, brotið siða­reglur RÚV með nánar til­greindum ummælum á sam­fé­lags­miðl­um. Sam­kvæmt 9. gr. reglna um siða­nefnd Rík­is­út­varps­ins segir að ef nið­ur­staða nefnd­ar­innar bendi til þess að um sé að ræða brot í starfi í skiln­ingi laga skuli nefndin vekja athygli útvarps­stjóra á því. Ekk­ert kemur fram í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar um að það eigi við í umræddu til­viki. Nið­ur­staðan hefur því ekki áhrif á störf Helga Seljan hjá RÚV.“

Í yfir­lýs­ing­unni er tekið fram að kærur Sam­herja til siða­nefndar RÚV snú­ist ekki um hvað er satt og rétt í frétta­flutn­ingi RÚV um Sam­herja heldur hvort skrif frétta­manna á sam­fé­lags­miðlum séu smekk­leg eða ekki. „Siða­nefndin fjall­aði ekki um fréttir eða frétta­skýr­ingar RÚV, efni þeirra eða vinnslu. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar felur ekki í sér neina afstöðu til frétt­anna. Frétta­stofa RÚV stendur við allan frétta­flutn­ing af mál­efnum Sam­herja og mun halda áfram að fjalla um fyr­ir­tækið eins og til­efni er til. Úrskurður nefnd­ar­innar er ítar­lega rök­studd­ur. Yfir hann verður farið nánar af hálfu stjórn­enda RÚV og frétta­stofu eins og eðli­legt er.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent