Nýjasta eintak Charlie Hebdo komið út, Múhameð á forsíðunni

h_51735573.jpg
Auglýsing

Nýjasta ein­tak franska skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo kom úr prentun í morgun og er nú til sölu víða um heim. Á for­síð­unni er, eins og við var búist, skop­mynd af Múhameð spá­manni þar sem hann heldur á skilti með fra­s­anum „Je suis Charlie" (Ég er Charlie). Fyrir ofan mynd­ina stendur „Tout est pardonné" (allt er fyr­ir­gef­ið).

Ren­ald Luzi­er, skop­mynda­teikn­ar­inn sem teikn­aði for­síð­una, sést hér að neðan tár­votur útskýra hvernig hún varð til.

Auglýsing


https://www.youtu­be.com/watch?v=ZrKN3HD­BqKA

Blaðið er gefið út í þremur millj­ónum ein­taka, en venju­legt upp­lag þess er 60 þús­und ein­tök. Það er einnig gefið út á sex tungu­mál­um. Blöð voru prentuð á frönsku, ítölsku og tyrk­nesku auk þess sem útgáfur á ensku, spænsku og arab­ísku er að finna á net­inu.

Nýtt mynd­band af Kou­achi-bræðr­unum

Hryðju­verka­árás­irnar sem framdar í París í síð­ustu viku eru þær mann­skæð­ustu sem  hafa átt sér stað í Frakk­landi frá árinu 1961, en þá stóð Alsírska stríðið yfir. Árás­irnar hófust á mið­viku­dag, fyrir einni viku síð­an, þegar ráð­ist var inn í höf­uð­stöðvar skop­mynda­rits­ins Charlie Hebdo. Þar voru tveir lög­reglu­menn og tíu starfs­menn blaðs­ins myrt­ir. Árás­ar­menn­irnir voru tveir bræð­ur, Said Kou­achi og Cherif Kou­achi. Þeir réð­ust sér­stak­lega á blað­ið, og ákveðna starfs­menn þess, vegna teikn­inga sem það hafði birt af Múhammeð spá­manni.

Charlie Hebdo var gefið út í þremur milljónum eintaka í dag og á sex tungumálum. Charlie Hebdo var gefið út í þremur millj­ónum ein­taka í dag og á sex tungu­mál­u­m.

Á fimmtu­dag myrt­i A­me­dy Couli­ba­ly, sem sagð­ist vera vit­orðs­maður bræðranna, lög­reglu­konu í Par­ís.

Bræð­urnir voru báðir drepnir í áhlaupi lög­reglu síð­degis á föstu­dag. Þeir höfðu þá tekið gísl og héld­ust við í lít­illi prent­smiðju rétt utan Par­ís­ar. Sam­tímis var ráð­ist inn í verslun í aust­ur­hluta Par­ís­ar, sem rekin er af gyð­ing­um, þar sem önnur gísla­taka var í gangi. Þar hafði Amedy Couli­baly tekið minnst sex gísla. Couli­baly hafði hótað að myrða gísla sína ef reynt yrði að hand­sama Kou­achi bræð­ur. Couli­baly var drep­inn í áhlaupi lög­reglu en hann hafði áður drepið fjóra gísla.

Í gær­kvöldi birtu fjöl­margar frétta­stofur víða um heim nýtt mynd­band af Kou­achi bræðr­unum á meðan að á árásinni á Charlie Hebdo stóð.

https://www.youtu­be.com/watch?v=a7K­pex8O9QE

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None