Vinnuregla að forsætisráðherra fari ekki nema vera sérstaklega boðið

9951303834-6436720f14-z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir það vinnu­reglu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu að ráð­herr­ann sé „aldrei sendur nema honum sé sér­stak­lega boð­ið.“ Þetta sé vegna þess að mjög margar upp­á­komur væru þess virði að sækja og nauð­syn­legt hefði ver­ið að tak­marka slíkt.

Þetta sagði for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í dag, í umræðum um hvers vegna hann fór ekki á sam­stöðu­fund vegna hryðju­verk­anna í Par­ís. Hann sagði að hann hefði gjarnan viljað hafa haft tæki­færi til þess að mæta. „Eftir að varð ljóst hvers eðlis væri var orðið of seint að kom­ast á stað­inn,“ sagði hann.

Hann tók undir margt af því sem kom fram í yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag, um að eftir á að hyggja hefði verið betra að ein­hver æðstu ráða­manna þjóð­ar­innar hefði mætt.

Auglýsing

Umræðan skrýtin



Sig­mundur Davíð sagði jafn­framt að umræðan um fjar­veru hans hefði um margt verið skrýt­in. „Það ger­ist allt of oft þegar upp koma ein­hver alvar­leg mál, sem eiga að vekja okkur til umhugs­unar um mikil grund­vall­ar­at­riði, þá snýst umræðan allt of mikið um eitt­hvað á yfir­borð­inu. Eitt­hvað sem leiðir umræð­una jafn­vel út í móa. Það er nú það versta við þetta ef þetta hefur orðið til þess að leiða umræðu frá ýmsum mik­il­vægum álita­efnum eitt­hvað allt ann­að.“

Hann sagð­ist hafa fylgst mikið með umræðu í kjöl­far hryðju­verk­anna, meðal ann­ars hvað varðar tján­ing­ar­frelsi, ekki síst í erlendum fjöl­miðl­um. Þar væri talað um að menn þori ekki að ræða hvað sem er á Vest­ur­lönd­um. Spurður að því hvort hann sæi til­hneig­ingu til þessa í okkar sam­fé­lagi sagði Sig­mundur Davíð margt minna á þessa gagn­rýni og umræðu um stöðu tján­ing­ar­frels­is. „Það er að segja, það er eins og það sé alltaf að þrengj­ast ramm­inn um það hvað megi ræða og rök­ræða sé meira að segja bönnuð um ákveðna hluti. Og ég er svo­lítið hræddur um að þessir full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar sem voru að spyrja eitt­hvað út í þessa hluti í gær, ég er svo­lítið hræddur um að þeir sjái fyrir sér að ramm­inn þreng­ist frekar en að hann opn­ist. Nema kannski Pírat­arn­ir, sem hafa verið svo­lítið dug­leg­ir, sumir hverjir að minna á mik­il­vægi tján­ing­ar­frels­is­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None