Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar gerði skipan ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis að umtalsefni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að Skúli Eggert Þórðarson, sem verið hefur ríkisendurskoðandi frá árinu 2018, hefði verið skipaður ráðuneytisstjóri nýs ráðuneytis Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra.
Þingmaðurinn sagði í ræðu sinni að nýlega hefði þingmönnum verið tilkynnt að forseti Alþingis hefði fallist á beiðni menningarráðherra um að ríkisendurskoðandi yrði fluttur yfir í nýtt ráðuneyti og skipaður ráðuneytisstjóri.
Þetta hefði verið gert, samkvæmt tilkynningu á vef Alþingis, á grundvelli 36. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en samkvæmt ákvæðinu „getur stjórnvald, sem skipað hefur mann í embætti, samþykkt að hann flytjist í annað embætti er lýtur öðru stjórnvaldi, enda óski það stjórnvald eftir því“.
„Ef við skoðum nú aðeins greinargerðina frá því að starfsmannalög voru sett þá kemur þar skýrt fram að ákvæðið snýst um heimildir ráðherra – að heimilt sé að flytja mann úr einu embætti í annað þótt embættin heyri undir tvo ráðherra. Tvo ráðherra. Þetta skiptir máli.
Því við skulum hafa það alveg á hreinu að ríkisendurskoðun er ekki hluti af framkvæmdavaldinu og ríkisendurskoðandi heyrir ekki undir neinn ráðherra – þetta er sjálfstæð eftirlitsstofnun sem starfar á vegum Alþingis rétt eins og umboðsmaður Alþingis,“ sagði þingmaðurinn.
Skaðlegt að beita lögunum með þessum hætti
Jóhann Páll hélt því fram að með „þessum gjörningi“ væri verið að misbeita 36. grein starfsmannalaga. „Það myndi engum detta það í hug að ráðherra gæti til dæmis teygt sig yfir á svið dómsvaldsins og sótt sér þangað dómara og fært yfir í ráðuneytið sitt, en lögin gera heldur ekki ráð fyrir að ráðherra teygi sig yfir á svið löggjafarvaldsins og eftirlitsstofnana þess og sæki sér þangað embættismann.“
Hann sagði enn fremur að það væri skaðlegt að beita lögunum með þessum hætti og óboðlegt að láta eins og forseti Alþingis hefði eitthvert húsbóndavald yfir ríkisendurskoðanda, að forseti „féllist á“ flutning hans yfir til ráðuneytis.
„Ríkisendurskoðandi er sjálfstæður í sínum störfum, hann er trúnaðarmaður Alþingis – alls Alþingis – hann er kosinn af Alþingi og honum verður ekki vikið úr starfi nema með samþykki Alþingis.
Hér hefur verið sett hættulegt fordæmi og bara ég mótmæli þessu. Þetta stríðir gegn þrískiptingu ríkisvalds, þetta er virðingarleysi gagnvart Alþingi og gagnvart þeim eftirlitsstofnunum sem starfa á vegum Alþingis. Og við hér í þessum sal getum ekki setið þegjandi undir þessu. Við getum það ekki. Við verðum að taka þetta til skoðunar,“ sagði hann að lokum.