Ólöf Helga taldist ekki hafa umboð sem trúnaðarmaður – Uppsögnin ekki ólögleg

Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Icelandair hafi ekki brotið gegn lögum með því að segja Ólöfu Helgu Adolfsdóttur upp störfum sem hlaðmanni á Reykjavíkurflugvelli.

Ólöf Helga Adolfsdóttir var fyrrverandi trúnaðarmaður hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli er henni var sagt upp, að mati Félagsdóms.
Ólöf Helga Adolfsdóttir var fyrrverandi trúnaðarmaður hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli er henni var sagt upp, að mati Félagsdóms.
Auglýsing

Ekki er hægt að líta svo á að Ólöf Helga Adolfs­dóttir hafi í reynd haft umboð sem trún­að­ar­maður hjá Icelandair er flug­fé­lagið sagði henni upp störfum í ágúst í fyrra og ekki er heldur unnt að leggja til grund­vallar að henni hafi verið sagt upp sökum þess hvernig hún beitti sér sem örygg­is­trún­að­ar­maður á vinnu­staðn­um.

Þetta eru megin nið­ur­stöður Félags­dóms, sem kvað upp dóm í mál­inu sem varðar upp­sögn Ólafar Helgu frá Icelandair í dag. Sam­tök atvinnu­lífs­ins fyrir hönd Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar vegna Icelandair telj­ast því sýkn af kröfum Alþýðu­sam­bands Íslands, sem settar voru fram fyrir hönd Starfs­greina­sam­bands­ins vegna Efl­ingar stétt­ar­fé­lags sem rak málið áfram fyrir Ólöfu Helgu.

Engu breyti þótt sam­starfs­menn hafi talið Ólöfu trún­að­ar­mann

Mál Ólafar Helgu vakti tölu­vert mikla athygli er það kom upp, en stétt­ar­fé­lagið Efl­ing fór fram á að upp­sögn hennar yrði dregin til baka þar sem óheim­ilt væri fyrir Icelandair að segja upp starf­andi trún­að­ar­manni. Icelandair bar því hins vegar við að Ólöf Helga hefði ekki lengur haft umboð sem trún­að­ar­mað­ur, en hún var kjörin af sam­starfs­fólki sínu til þess hlut­verks í mars 2018 til tveggja ára.

Frá samstöðufundi Eflingar við Reykjavíkurflugvöll í október 2021. Mynd: Efling stéttarfélag

Félags­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ágrein­ings­laust væri að ekki hefði farið fram kosn­ing á trún­að­ar­manni á vinnu­staðnum eftir að því tíma­bili lauk, auk þess sem ekki væri séð að Ólöf Helga hefði verið til­nefnd af Efl­ingu stétt­ar­fé­lagi án kosn­ingar eða að upp­lýs­ingum um val hennar til áfram­hald­andi starfa sem trún­að­ar­maður starfs­manna hefði verið komið á fram­færi við Icelanda­ir.

„Í ljósi þeirra atvika sem rakin hafa verið að framan og hinna skýru ákvæða sem giltu um aðferð við val trún­að­ar­manns sam­kvæmt kjara­samn­ingi er ekki unnt að líta svo á að Ólöf Helga hafi haft stöðu trún­að­ar­manns þegar henni var sagt upp störfum í ágúst 2021,“ segir í dómi Félags­dóms.

Einnig er því bætt við að það geti „ekki breytt þess­ari nið­ur­stöðu þó að a.m.k. ein­hverjir sam­starfs­menn Ólafar Helgu, sem og til­teknir stjórn­end­ur, kunni að hafa litið á hana sem trún­að­ar­mann“. Vísað er til dómafor­dæmis úr Hæsta­rétti hvað þetta atriði varð­ar.

Ólöf Helga hafði einnig verið svo­kall­aður örygg­is­trún­að­ar­maður hjá Air Iceland Conn­ect áður en henni var sagt upp og taldi sig einnig eiga að njóta verndar vegna upp­sagna á þeim grund­velli.

Félags­dómur segir óum­deilt að Ólöf Helga og annar starfs­maður Air Iceland Conn­ect hafi verið kosin í febr­úar 2020 til þess að gegna starfi örygg­is­trún­að­ar­manna í örygg­is­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins, þó að reyndar sé til­tekið í dómnum að það séu engin merki um að sú nefnd hafi nokkru sinni komið sam­an.

Auglýsing

Dóm­ur­inn féllst hins vegar einnig á rök­semdir Icelandair þess efnis að þegar starf­semi Air Iceland Conn­ect var felld undir hatt Icelandair hafi umboð örygg­is­nefndar þeirrar sem var á vegum Air Iceland Conn­ect fallið niður – örygg­is­nefndin hætt að vera til.

Þrátt fyrir það telur dóm­ur­inn að Ólöf Helga hafi áfram, eftir að Icelandair sam­tvinn­aði rekstur inn­an­lands­flugs­ins við móð­ur­fé­lag­ið, átt að njóta þeirrar verndar gegn upp­sögn sem staða hennar sem örygg­is­trún­að­ar­maður veitti henni.

Félags­dómur telur hins vegar ekki unnt að leggja til grund­vallar að það hafi verið fyrri störf Ólafar Helgu sem örygg­is­trún­að­ar­manns sem hafi verið ástæða upp­sagn­ar­inn­ar, jafn­vel þótt ástæða upp­sagn­ar­innar sé sögð „nokkuð á reik­i“.

„Þegar upp kom ágrein­ingur um hvort starfs­menn hlað­deildar eða far­þega­af­greiðslu skyldu ann­ast flutn­ing far­þega um borð í flug­vélar hafði Ólöf Helga ekki for­göngu um að málið yrði tekið upp á vett­vangi örygg­is­nefndar fyr­ir­tæk­is­ins. Af gögnum máls­ins verður ekki annað ráðið en að fram­ganga hennar í mál­inu hafi aðal­lega byggst á stöðu hennar sem flokks­stjóra í hlað­deild og að öðru leyti sem málsvari starfs­manna deild­ar­innar enda þótt hún hafi ekki gegnt stöðu trún­að­ar­manns,“ segir um þetta atriði í dómi Félags­dóms.

Dómnum þótti rétt að láta máls­kostnað milli aðila falla niður í ljósi atvika máls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent