Ómar Már Jónsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til borgarstjórnar Reykjavíkur og stefnir hann á fyrsta sæti á lista Miðflokksins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ómari Má sem hann setti á Facebook-síðu sína í gær.
Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins greindi frá því í fyrradag að hún hefði ákveðið að sækjast ekki eftir að leiða flokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum í vor sem fara fram þann 14. maí.
„Málefni sveitarstjórna eru mér ekki ókunn eftir að hafa starfað sem sveitarstjóri Súðavíkurhrepps um árabil. Þá var ég í 4. sæti á lista framboðs Miðflokksins í síðustu alþingiskosningum hér í Reykjavík. Stjórnmál eru því stór hluti af lífi mínu þó ég hafi seinni ár helgað mig fyrirtækjarekstri mínum.
Það hefur verið nokkur aðdragandi að þessari ákvörðun minni eða allt síðan Vigdís Hauksdóttir, hin skeleggi borgarstjórnarfulltrúi flokksins, ákvað að draga sig í hlé. Óhætt er að segja að fáir eða engir hafi haldið úti jafn kröftugri stjórnarandstöðu og Vigdís og við Miðflokksmenn þökkum henni störfin. En nú er komið að öðrum að halda uppi merki flokksins og stefnu,“ segir hann í yfirlýsingunni.
Margt sem bæta má í borginni
Segist Ómar Már ennfremur brenna fyrir málefnum borgarinnar þar sem hann býr nú ásamt fjölskyldu sinni og rekur fyrirtæki þar.
„Það er svo margt sem má bæta hér í borginni okkar og því gat ég ekki hugsað mér að sleppa tækifærinu þegar kallið kom. Eftir samráð við fjölskyldu mína hef ég ákveðið að hella mér út í það verkefni að leiða lista Miðflokksins í Reykjavík.
Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið mig þá er ég borinn og barnfæddur Vestfirðingur. Bjó í Súðavík þar til ég flutti til Reykjavíkur árið 1986 til að fara í Stýrimannaskólann og þaðan lá leiðin í Tækniskóla Íslands. Eftir útskrift, bjó ég og starfaði í Reykjavík þar til ég flutti til Súðavíkur árið 2002, til að taka við starfi sveitarstjóra Súðavíkurhrepps,“ segir hann.
Gera þarf gagngerar breytingar á rekstri borgarinnar
Ómar Már starfaði sem sveitarstjóri Súðavíkurhrepps frá október 2002 og sat jafnframt í sveitarstjórn frá árinu 2006 fyrir hönd L-listans. Við náðum gríðarlegum árangri við uppbyggingu Súðavíkurhrepps eftir það mikla högg sem samfélagið varð fyrir í kjölfar hörmulegra snjóflóða. Segja má að þessu uppbyggingastarfi með áherslu á atvinnumál og ferðaþjónustu hafi verið lokið árið 2014 og þá ákvað ég að hætta afskiptum af sveitarstjórnarmálum þar og flytja til Reykjavíkur þar sem ég hóf fyrirtækjarekstur. Þessi tólf ár í sveitastjórnarmálum voru krefjandi og skemmtileg. Ég naut þess að kynnast og starfa með frábæru fólki og eignast góða félaga. Um leið fékk ég mikla innsýn í sveitastjórnarmál á landssvísu og kynntist mörgu góðu fólki þar.
Það er mikil áskorun að koma inn í borgarstjórn Reykjavíkur á þessum tímamótum. Augljóslega þarf að gera gagngerar breytingar á rekstri borgarinnar og ná tökum á fjármálum hennar. Um leið þarf að styrkja þjónustu við íbúa hennar og ráðast í öll þau brýnu verkefni sem hafa setið á hakanum. Ég mun nú næstu vikur kynna fyrir ykkur hvar mínar málefnalegu áherslur liggja,“ segir hann að lokum.
Það voru góðir tímar sem ég átti í Súðavík í þau 12 ár sem ég starfaði þar sem sveitarstjóri og þaðan tók ég með mér...
Posted by Ómar Már Jónsson on Friday, March 11, 2022