Ómar Már Jónsson sækist eftir að leiða Miðflokkinn í borginni

„Það er svo margt sem má bæta hér í borginni okkar og því gat ég ekki hugsað mér að sleppa tækifærinu þegar kallið kom,“ segir Ómar Már í yfirlýsingu.

Ómar Már Jónsson
Ómar Már Jónsson
Auglýsing

Ómar Már Jóns­son hefur ákveðið að bjóða sig fram til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur og stefnir hann á fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ómari Má sem hann setti á Face­book-­síðu sína í gær.

Vig­­dís Hauks­dóttir borg­­ar­­full­­trúi Mið­­flokks­ins greindi frá því í fyrra­dag að hún hefði ákveðið að sækj­­ast ekki eftir að leiða flokk­inn í kom­andi borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingum í vor sem fara fram þann 14. maí.

Auglýsing

„Mál­efni sveit­ar­stjórna eru mér ekki ókunn eftir að hafa starfað sem sveit­ar­stjóri Súða­vík­ur­hrepps um ára­bil. Þá var ég í 4. sæti á lista fram­boðs Mið­flokks­ins í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum hér í Reykja­vík. Stjórn­mál eru því stór hluti af lífi mínu þó ég hafi seinni ár helgað mig fyr­ir­tækja­rekstri mín­um.

Það hefur verið nokkur aðdrag­andi að þess­ari ákvörðun minni eða allt síðan Vig­dís Hauks­dótt­ir, hin skel­eggi borg­ar­stjórn­ar­full­trúi flokks­ins, ákvað að draga sig í hlé. Óhætt er að segja að fáir eða engir hafi haldið úti jafn kröft­ugri stjórn­ar­and­stöðu og Vig­dís og við Mið­flokks­menn þökkum henni störf­in. En nú er komið að öðrum að halda uppi merki flokks­ins og stefn­u,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni.

Margt sem bæta má í borg­inni

Seg­ist Ómar Már enn­fremur brenna fyrir mál­efnum borg­ar­innar þar sem hann býr nú ásamt fjöl­skyldu sinni og rekur fyr­ir­tæki þar.

„Það er svo margt sem má bæta hér í borg­inni okkar og því gat ég ekki hugsað mér að sleppa tæki­fær­inu þegar kallið kom. Eftir sam­ráð við fjöl­skyldu mína hef ég ákveðið að hella mér út í það verk­efni að leiða lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík.

Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið mig þá er ég bor­inn og barn­fæddur Vest­firð­ing­ur. Bjó í Súða­vík þar til ég flutti til Reykja­víkur árið 1986 til að fara í Stýri­manna­skól­ann og þaðan lá leiðin í Tækni­skóla Íslands. Eftir útskrift, bjó ég og starf­aði í Reykja­vík þar til ég flutti til Súða­víkur árið 2002, til að taka við starfi sveit­ar­stjóra Súða­vík­ur­hrepps,“ segir hann.

Gera þarf gagn­gerar breyt­ingar á rekstri borg­ar­innar

Ómar Már starf­aði sem sveit­ar­stjóri Súða­vík­ur­hrepps frá októ­ber 2002 og sat jafn­framt í sveit­ar­stjórn frá árinu 2006 fyrir hönd L-list­ans. Við náðum gríð­ar­legum árangri við upp­bygg­ingu Súða­vík­ur­hrepps eftir það mikla högg sem sam­fé­lagið varð fyrir í kjöl­far hörmu­legra snjó­flóða. Segja má að þessu upp­bygg­inga­starfi með áherslu á atvinnu­mál og ferða­þjón­ustu hafi verið lokið árið 2014 og þá ákvað ég að hætta afskiptum af sveit­ar­stjórn­ar­málum þar og flytja til Reykja­víkur þar sem ég hóf fyr­ir­tækja­rekst­ur. Þessi tólf ár í sveita­stjórn­ar­málum voru krefj­andi og skemmti­leg. Ég naut þess að kynn­ast og starfa með frá­bæru fólki og eign­ast góða félaga. Um leið fékk ég mikla inn­sýn í sveita­stjórn­ar­mál á lands­s­vísu og kynnt­ist mörgu góðu fólki þar.

Það er mikil áskorun að koma inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur á þessum tíma­mót­um. Aug­ljós­lega þarf að gera gagn­gerar breyt­ingar á rekstri borg­ar­innar og ná tökum á fjár­málum henn­ar. Um leið þarf að styrkja þjón­ustu við íbúa hennar og ráð­ast í öll þau brýnu verk­efni sem hafa setið á hak­an­um. Ég mun nú næstu vikur kynna fyrir ykkur hvar mínar mál­efna­legu áherslur liggja,“ segir hann að lok­um.

Það voru góðir tímar sem ég átti í Súða­vík í þau 12 ár sem ég starf­aði þar sem sveit­ar­stjóri og þaðan tók ég með mér­...

Posted by Ómar Már Jóns­son on Fri­day, March 11, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent