Ómönnuð geimflaug sprakk í flugtaki

B1EXZs0IMAElFNK.jpg
Auglýsing

Banda­rísk ómönnuð geim­flaug sem átti að bera tækni- og rann­sókn­ar­búnað til Alþjóð­legu geim­stöðv­ar­innar sprakk í loft upp þegar hún hafði aðeins risið fáeina tugi metra frá jörðu. Geimskotið var klukkan 22:22 í kvöld að íslenskum tíma. Engar vís­bend­ingar eru um að fólk hafi slasast og fyrstu kann­anir á skot­pall­inum benda til þess að tak­mark­aðar skemmdir hafa orð­ið.

Geimskotið var á vegum einka­fyr­ir­tæk­is­ins Orbi­tal Sci­ences og flaugin þeirra smíð. Orbi­tal Sci­ences er eitt fárra einka­fyr­ir­tækja sem sinna geim­ferðum NASA til geim­stöðv­ar­inn­ar, en eftir að Geimsku­tlu­á­ætlun NASA var lögð niður hafa einka­fyr­ir­tæki séð um ferðir Banda­ríkja­manna til geim­stöðv­ar­inn­ar.

Sex sek­úndum eftir að flaugin lift­ist frá skot­palli Orbi­tal Sci­ences í Virg­in­íu-­ríki í Banda­ríkj­unum virð­ist neisti hafa kom­ist í full­hlaðna elds­neytistanka flaug­ar­inn­ar. Ant­ares átti sam­kvæmt áætl­unum að fara í loftið á mánu­dag­inn en var frestað þegar bátur fór inn fyrir örygg­is­svæði tíu mín­útum áður en flaugin átti að fara á loft.

Auglýsing



Flaugin bar ekki aðeins rúm­lega tvö tonn af bún­aði fyrir Alþjóð­legu geim­stöð­ina heldur voru um borð gervi­hnettir sem setja átti á spor­braut um jörðu.  Meðal birgða sem átti að flytja í geim­stöð­ina var matur og vatn fyrir geim­fara sem sinna rann­sóknum í geimn­um. Ant­ares-flaug­inni hafði verið breytt örlítið til að bera enn meiri far­angur en fyrri flaugar af sömu gerð.

Geimskotið var fjórða verk­efni Orbi­tal Sci­ences ­fyrir NASA og hluti af 1,9 millj­arða doll­ara samn­ingi banda­rísku geim­ferða­stofn­un­ar­innar við einka­fyr­ir­tæk­ið. Space X er einnig á samn­ingi hjá NASA um að sjá geim­stöð­inni fyrir birgð­um.

Fjallað var um geim­ferða­á­ætl­anir einka­fyr­ir­tækja í hlað­varps­þætt­inum ÞUKL í Hlað­varpi Kjarn­ans fyrr í októ­ber.

Bein útstend­ing frá skot­stað í Virg­iníu



Upp­fært klukkan 22:55: Rang­lega var sagt að fyr­ir­tækið sem stæði fyrir geimskot­inu héti Ant­ares. Hið rétta er að það heitir Orbi­tal Sci­ences en geim­flaugin sem sprakk var kölluð Ant­ares.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None