Önnur Norðurlönd glíma einnig við lítið framboð íbúða á sölu

Rétt eins og á Íslandi hefur mikill þrýstingur verið á fasteignamarkaðnum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku á síðustu mánuðum. Hratt hefur gengið á framboð á eignum til sölu í löndunum þremur, sem er í lágmarki þessa stundina.

Riddarahólmurinn í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Riddarahólmurinn í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Auglýsing

Fast­eigna­mark­að­ur­inn í Nor­egi, Sví­þjóð og Dan­mörku hefur sýnt sömu merki eft­ir­spurn­ar­þrýst­ings á síð­ustu mán­uð­um. Fram­boð eigna á sölu mælist nú í met­lægðum í Osló og Stokk­hólmi og í Dan­mörku hefur það ekki mælst minna. Þrátt fyrir það hefur áhug­inn fyrir íbúða­kaupum ekki gefið eftir og hefur því fast­eigna­verð hækkað hratt.

Mesta velta síðan mæl­ingar hófust

Sam­kvæmt norska við­skipta­blað­inu Dag­ens Nær­ingsliv hefur veltan á fast­eigna­mark­aði í aust­ur­hluta lands­ins, þar sem höf­uð­borgin Osló er, auk­ist hratt á síð­ustu miss­er­um. Frá miðjum des­em­ber í fyrra hafa þar selst um tvö þús­und íbúð­ir, en það er mesta veltan á svæð­inu síðan mæl­ingar á henni hófust árið 2003.

Svip­aða sögu er að segja frá hinum Norð­ur­lönd­un­um, sam­kvæmt sam­an­tekt sænsku síð­unnar Dag­ens Log­istik. Þar segir að fjöldi kaup­samn­inga í Sví­þjóð, Nor­egi, Finn­landi og Dan­mörku í fyrra hafi verið 15-33 pró­sentum meiri en á árinu 2020.

Auglýsing

Í Dan­mörku seld­ust yfir sjö þús­und íbúðir í síð­ustu mán­uði, en sam­kvæmt Boligsiden, sem heldur utan um töl­fræði um hús­næð­is­mark­að­inn, er það næst­mesta mán­að­ar­lega veltan sem mælst hefur síðan mæl­ingar á henni hófust árið 2010. Síðan bætir við að veltan sé rúm­lega fjórð­ungi meiri en hún var að með­al­tali á sama tíma árs árin 2015-2019.

Íbúðum á sölu fækkar

Á sama tíma og fjöldi keyptra íbúða eykst hefur óseldum íbúðum hins vegar fækkað tölu­vert. Sam­kvæmt Dag­ens Nær­ingsliv eru nú rúm­lega 800 íbúðir á sölu í Osló, en þær voru um 1.500 tals­ins áður en far­ald­ur­inn hófst í febr­úar 2020.

Fjöldi íbúða í Dan­mörku á sölu hefur einnig minnk­að, en þær voru alls rúm­lega 22 þús­und tals­ins í byrjun þessa mán­að­ar. Fram­boðið minnk­aði um sjö pró­sent frá því í fyrra og er það nú það lægsta sem Boligsiden hefur mælt.

Í Sví­þjóð hefur sams konar þróun átt sér stað. Sam­kvæmt frétt frá fyr­ir­tæk­inu Fastig­hets­byrån hefur fram­boðið á íbúðum til sölu verið ein­stak­lega lágt í Stokk­hólmi, Gauta­borg og Malmö á und­an­förnum mán­uð­um. Johan Engström, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, segir eft­ir­spurn­ina samt sem áður mikla og ekki hafa minnkað þrátt fyrir óróa á hluta­bréfa­mark­aði og tal um hækk­andi stýri­vexti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent