Jón Þór Ólafsson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og þingmaður Pírata, hefur lagt til að nefndin taki fyrir nýlegan úrskurð nefndar um eftirlit með lögreglu (NEL). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum.
Kanna þurfi hvort úrskurðurinn, sem lýtur að samtali tveggja lögreglumanna á Þorláksmessu í Ásmundarsal, standist lög og reglur.
Jón Þór telur fréttaflutning af málinu gefa fullt tilefni til þess að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki úrskurð NEL til umfjöllunar á opnum fundi.
Tveggja manna tal sem ekki gæti haft áhrif á tilkynninguna
Rökin sem þingmaðurinn gefur fyrir fundi eru þau að NEL telji samtal lögreglumannanna ámælisvert en „ekki virðist hafa komið fram í fjölmiðlum nákvæmlega hvað það er við orð lögreglumanna sem sé ámælisvert. Ljóst er þó að þarna fer fram tveggja manna tal sem getur ekki haft áhrif á það mál sem upprunalega var tilkynnt um, þ.e. fréttatilkynningu frá lögreglu daginn eftir.“
Í öðru lagi bendir Jón Þór á að komið hafi fram í fjölmiðlum að hvorugur lögreglumannanna hafi komið nokkuð nálægt því að semja fréttatilkynninguna sem send var út að morgni aðfangadags og þetta samtal því ekki hluti af framkvæmd, starfsaðferðum eða verklagi lögreglu.
Í þriðja lagi segir hann að samtal lögreglumannanna hafi farið fram í einrúmi þar sem almenningur heyrir ekki til þeirra og því ljóst að ekki hafi verið kvartað til NEL vegna samtalsins. Það komi einungis í ljós þegar myndbandsupptökur eru skoðaðar síðar.
Í fjórða lagi segir þingmaðurinn að NEL virðist ekki gera greinarmun á því að lögreglumenn hafi skoðanir og að þeir gæti fyllstu hlutlægni í störfum sínum, eins og kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. lögreglulaga. Verði þó með engu móti séð að þetta einkasamtal hafi haft áhrif á vettvangi, því ekki var kvartað yfir framkomu þessara tveggja lögreglumanna.
Vill að hægt sé að vitna í orð gesta fundarins
„Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur eftirlitsskyldu með framkvæmdavaldinu og sjálfstæðum stjórnsýslunefndum eins og NEL, samkvæmt nýsamþykktum lögum um þingsköp Alþingis. Það er mat Jóns Þórs að kanna þurfi hvort úrskurður NEL sé í samræmi við lögreglulög, lög um persónuvernd og verklagsreglur lögreglu um notkun búkmyndavéla.
Að sama skapi telur Jón Þór mikilvægt að fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sé opinn fjölmiðlum svo hægt sé að vitna í orð gesta, sem eins og reynslan hefur sýnt okkur að sé forsenda þessa að eftirlitshlutverk Alþingis virki,“ segir í tilkynningu Pírata.