Þingmenn óska eftir því að gert verði hlé á þingfundi – „Við verðum að taka þetta alvarlega“

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, ásamt öðrum þingmönnum, hefur óskað eftir því að formenn flokka á þingi setjist niður og taki ákvörðun um það að fram fari fagleg rannsókn á sölunni á Íslandsbanka í ljósi orða Sigríðar Benediktsdóttur.

Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Helga Vala telur að komin sé upp sú staða á Alþingi að for­seti þings­ins eigi að gera hlé á þing­fund­inum til þess að for­menn flokka á Alþingi geti sest niður og tekið ákvörðun um það að fram fari fag­leg rann­sókn á söl­unni á Íslands­banka. Þetta kom fram í máli hennar rétt í þessu undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi.

„Við þurfum að kom­ast að sam­eig­in­legri ákvörðun um það að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skip­uð,“ sagði hún en fjöl­margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar tóku undir með henni.

Vís­aði Helga Vala í frétt Kjarn­ans sem birt­ist í dag þar sem Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, sem sat í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrun­ið, segir að sala á hlutum í Íslands­banka til lít­illa fjár­festa í lok­uðu útboði brjóti í bága við lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta ríkis í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

Auglýsing

­Sig­ríður segir að á grund­velli ákvæða lag­anna verði ein­hver að axla ábyrgð á að hafa heim­ilað söl­una og auk þess þurfi að rifta þessum við­skiptum við ein­stak­linga og félög, enda séu við­skiptin ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og mið­lendum hefði átt að vera það ljóst sem og því stjórn­valdi sem heim­il­aði þetta.

Helga Vala hélt áfram: „Ég geri þá kröfu að við tökum núna hlé á þing­fundi til þess að for­menn flokka sem eiga sæti á Alþingi geti nú sest niður og kom­ist að sam­komu­lagi um að hér dugir ekk­ert annan en rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til þess að fara ofan í saumana á þessu. Þetta er spill­ing, frú for­seti. Það lítur út fyrir að hér hafi lög verið brot­in. Við verðum að taka þetta alvar­lega.“

Margir þing­menn í stjórn­ar­and­stöð­unni tóku undir orð Helgu Völu og ósk­uðu eftir hlé á þing­fundi til að fara yfir málið og að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is.

Upp­fært klukkan 16:05: For­seti Alþingis hefur orðið við ósk þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar að gera hlé á þing­fundi og ræða við þing­flokks­for­menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent