Óskar eftir upplýsingum um heildarkostnað ríkissjóðs vegna málareksturs gegn Hafdísi Helgu

Þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram fyrirspurn um heildarkostnað ríkissjóðs vegna málareksturs ríkisins gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur, sem sótti um stöðu ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti í ráðherratíð Lilju Alfreðsdóttur.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til mennta- og barna­mála­ráð­herra um heild­ar­kostnað rík­is­sjóðs vegna dóms­máls íslenska rík­is­ins á hendur Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur.

Haf­dís Helga var á meðal umsækj­anda um stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti sem aug­lýst var til umsóknar í júní 2019. Þann 1. nóv­­em­ber sama ár var Páll Magn­ús­­son skip­aður í starf­ið. Haf­­dís Helga kærði þá nið­­ur­­stöðu til kæru­­nefndar jafn­­rétt­is­­mála þar sem hún taldi ljóst að reynslu­minni og minna mennt­aður karl­­­maður hefði verið ráðin í starfið sem hún sótt­­­ist eft­­­ir.

Auglýsing

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu 2020 að Lilja Alfreðs­dótt­ir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefði brotið jafn­rétt­islög þegar hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Lilja ákvað að stefna kær­and­anum per­sónu­lega í nafni íslenska rík­is­ins til að fá úrskurð­inum hnekkt, tap­aði fyrir hér­aðs­dómi og ákvað að áfrýja til Lands­rétt­ar.

Þar átti að taka málið fyrir í 28. febr­úar en nokkrum dögum áður en mál­flutn­ingur átti að hefj­ast ákvað Ásmundur Einar Daða­son, sem tók við mála­rekstr­in­um, að semja um mála­lok og greiða Haf­dísi Helgu 2,3 millj­ónir króna í miska­bæt­ur.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála, hér­aðs­dóm­ur, áfrýj­un, Lands­dómur og sam­komu­lag um miska­bætur

Í fyr­ir­spurn sinni óskar Þor­björg eftir upp­lýs­ingum um kostnað íslenska rík­is­ins vegna með­ferðar máls­ins hjá kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála, kostnað við rekstur máls­ins fyrir hér­aðs­dómi, þar á meðal laun setts rík­is­lög­manns og málsvarn­ar­laun verj­anda stefndu.

Í mars í fyrra hafn­aði hér­­­aðs­­­dómur Reykja­víkur öllum máls­á­­­stæðum Lilju og sagði í nið­­­ur­­­stöðu sinni að ekki hafi verið fyrir hendi neinir „ann­­­markar á máls­­­með­­­­­ferð kæru­­­nefnd­­­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði henn­­­ar.“

Lilja ákvað að áfrýja dómnum rúmum fjórum klukku­­­stundum eftir að hann hafði fall­ið. Þar með lá fyrir að málið yrði í áfrýj­un­­ar­­ferli að minnsta kosti fram yfir þing­­kosn­­ing­­ar, sem fram fóru 25. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn. Í fyr­ir­spurn sinni óskar Þor­björg eftir upp­lýs­ingum um kostnað vegna áfrýj­unar og með­ferðar máls­ins í Lands­rétti, þar á meðal laun setts rík­is­lög­manns og málsvarn­ar­laun verj­anda stefndu.

Þá óskar Þor­björg einnig eftir upp­lýs­ingum um kostnað íslenska rík­is­ins vegna sam­komu­lags­ins sem gert var við Haf­dísi Helgu í aðdrag­anda þess að fallið var frá mál­inu nokkrum dögum áður en til mál­flutn­ings kom.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans nam kostn­að­­­­ur­ rík­­­is­ins við rekstur máls­ins fyrir hér­­­­aðs­­­­dómi alls 8,7 millj­­­­ónum króna. Áætlað var að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar yrði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­­­­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Til við­­bótar bæt­ist sá kostn­aður sem fellur til vegna greiðslu miska­­bóta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent