Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun leiða lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Frá þessu segir Páll í færslu á Facebook í kvöld.
Fyrir Heimaey myndar í dag meirihluta í bæjarstjórn í Vestmannaeyjum ásamt Eyjalistanum, en Sjálfstæðisflokkurinn er í minnihluta. Páll studdi ekki framboð Sjálfstæðisflokksins í Eyjum fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar og fékk bágt fyrir frá sjálfstæðismönnum í Vestmannaeyjum í kjölfarið.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri verður bæjarstjóraefni Fyrir Heimaey þrátt fyrir að Páll leiði listann. Í færslu Páls kemur fram að kjörnefnd bæjarmálafélagsins og Írisi hafi þótt að best færi á því að oddviti listans og bæjarstjóraefnið væru ekki einn og sami einstaklingurinn. Því sé sá háttur hafður á að hann leiði listann.
„Hvað mig varðar er ég þakklátur og stoltur af því að vera treyst fyrir þessu verkefni og mun leggja mig allan fram um að gera góðan bæ enn betri. Reynsla mín og þekking úr stjórnmálunum mun væntanlega ekki síst nýtast í samskiptum og hagsmunagæslu bæjarins gagnvart ríkisvaldinu. Auk þess hef ég langa reynslu af rekstri stórra fjölmiðlafyrirtækja - bæði í einkageiranum og hinum opinbera,“ segir Páll í færslu sinni.
Hann segir að sem Eyjamaður og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis um fimm ára skeið hafi han fylgst býsna grant með góðri frammistöðu bæjarstjórnarmeirihlutans á því kjörtímabili sem nú er að líða undir lok.
„Árangurinn hefur verið aðdáunarverður - ekki síst þegar höfð eru í huga utanaðkomandi áföll á borð við loðnubrest tvö ár í röð og covid-faraldur. Ég vil gjarnan stuðla að því að þetta góða starf haldi áfram undir öruggri forystu bæjarstjórans.“ skrifar Páll.
Vonast til að hægt verði að laga klofninginn
Undir lok færslu sinnar svarar hann síðan þeirri spurningu, hvort hann sé hættur að vera sjálfstæðismaður, í ljósi þessara vendinga.
„Svarið við þeirri spurningu er nei. Ég styð Sjálfstæðisflokkinn áfram á landsvísu þótt sjálfstæðismönnum í Vestmannaeyjum hafi ekki borið gæfa til að laga þann klofning sem hér varð 2018. Vonandi kemur að því fyrr en síðar,“ skrifar Páll.
Kæru vinir og kunningjar! Ég hef fallist á ósk bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey um að skipa fyrsta sætið á...
Posted by Páll Magnússon on Tuesday, April 5, 2022