Páll fer fram gegn Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum

Páll Magnússon fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks mun leiða lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri verður áfram bæjarstjóraefni framboðsins.

Páll Magnússon skipar efsta sætið á lista Fyrir Heimaey í maí.
Páll Magnússon skipar efsta sætið á lista Fyrir Heimaey í maí.
Auglýsing

Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun leiða lista bæj­ar­mála­fé­lags­ins Fyrir Heimaey í Vest­manna­eyjum í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Frá þessu segir Páll í færslu á Face­book í kvöld.

Fyrir Heimaey myndar í dag meiri­hluta í bæj­ar­stjórn í Vest­manna­eyjum ásamt Eyja­list­an­um, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í minni­hluta. Páll studdi ekki fram­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Eyjum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og fékk bágt fyrir frá sjálf­stæð­is­mönnum í Vest­manna­eyjum í kjöl­far­ið.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.

Íris Róberts­dóttir bæj­ar­stjóri verður bæj­ar­stjóra­efni Fyrir Heimaey þrátt fyrir að Páll leiði list­ann. Í færslu Páls kemur fram að kjör­nefnd bæj­ar­mála­fé­lags­ins og Írisi hafi þótt að best færi á því að odd­viti list­ans og bæj­ar­stjóra­efnið væru ekki einn og sami ein­stak­ling­ur­inn. Því sé sá háttur hafður á að hann leiði list­ann.

„Hvað mig varðar er ég þakk­látur og stoltur af því að vera treyst fyrir þessu verk­efni og mun leggja mig allan fram um að gera góðan bæ enn betri. Reynsla mín og þekk­ing úr stjórn­mál­unum mun vænt­an­lega ekki síst nýt­ast í sam­skiptum og hags­muna­gæslu bæj­ar­ins gagn­vart rík­is­vald­inu. Auk þess hef ég langa reynslu af rekstri stórra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja - bæði í einka­geir­anum og hinum opin­ber­a,“ segir Páll í færslu sinni.

Auglýsing

Hann segir að sem Eyja­maður og fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis um fimm ára skeið hafi han fylgst býsna grant með góðri frammi­stöðu bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans á því kjör­tíma­bili sem nú er að líða undir lok.

„Ár­ang­ur­inn hefur verið aðdá­un­ar­verður - ekki síst þegar höfð eru í huga utan­að­kom­andi áföll á borð við loðnu­brest tvö ár í röð og covid-far­ald­ur. Ég vil gjarnan stuðla að því að þetta góða starf haldi áfram undir öruggri for­ystu bæj­ar­stjór­ans.“ skrifar Páll.

Von­ast til að hægt verði að laga klofn­ing­inn

Undir lok færslu sinnar svarar hann síðan þeirri spurn­ingu, hvort hann sé hættur að vera sjálf­stæð­is­mað­ur, í ljósi þess­ara vend­inga.

„Svarið við þeirri spurn­ingu er nei. Ég styð Sjálf­stæð­is­flokk­inn áfram á lands­vísu þótt sjálf­stæð­is­mönnum í Vest­manna­eyjum hafi ekki borið gæfa til að laga þann klofn­ing sem hér varð 2018. Von­andi kemur að því fyrr en síð­ar,“ skrifar Páll.

Kæru vinir og kunn­ingjar! Ég hef fall­ist á ósk bæj­ar­mála­fé­lags­ins Fyrir Heimaey um að skipa fyrsta sætið á...

Posted by Páll Magn­ús­son on Tues­day, April 5, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent