Píratar, Samfylking og Viðreisn mælast saman með meira fylgi en stjórnarflokkarnir

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur hrunið eftir atburði síðustu daga. Síðustu tæpu viku mælist fylgi þeirra einungis 41,4 prósent. Á sama tíma mælist samanlagt fylgi þriggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna 45,4 prósent.

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur hrunið síðustu daga.
Fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur hrunið síðustu daga.
Auglýsing

Fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja hefur hrunið eftir að hneyksl­is­mál síð­ustu daga og vikna, sem fela í sér atvik á Bún­að­ar­þingi og umdeilda banka­sölu, komust í hámæli. Í nýrri könnun Mask­ínu fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis kemur fram að sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna hafi verið mælst 49 pró­sent 17. mars til 6. apr­íl. Frá þeim degi og fram til dags­ins í dag mæld­ist sam­an­lagt fylgi þeirra hins vegar 41,4 pró­sent. Frá þessu er greint á Vísi.

Fylgis­tapið dreif­ist nokkuð jafnt milli stjórn­ar­flokk­anna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti 2,3 pró­sentu­stig milli mæl­ing­ar­tíma­bil­anna og er með 20,8 pró­sent fylgi. Vinstri græn tapa 2,6 pró­sentu­stigum og mæl­ast með sjö pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fer úr 16,3 í 13,6 pró­sent. 

Á hinn bóg­inn hefur fylgi þeirra stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem hafa verið hávær­astir í gagn­rýni á stjórn­ar­flokk­anna vegna rasískra ummæla Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, og eft­ir­mála sölu á 22,5 pró­sent hlutar í Íslands­banka bætt gríð­ar­lega miklu fylgi við sig síð­ustu daga. Á tíma­bil­inu 17. mars til 6. apríl mæld­ist sam­an­lagt fylgi Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar 33 pró­sent. Frá 6. apríl og til dags­ins í dag mæld­ist það hins vegar 45,4 pró­sent. Þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæld­ust sam­kvæmt þessu með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír síð­ustu daga. 

Auglýsing
Mest jókst fylgi Pírata, um 6,7 pró­sentu­stig og upp í 17,9 pró­sent. Sam­fylk­ingin bætti við sig 4,3 pró­sentu­stigum og mælist með 16 pró­sent fylgi. Fylgi Við­reisnar jókst minnst, eða um 1,4 pró­sentu­stig og er 11,5 pró­sent. 

Þeir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem hafa látið minna fyrir sér fara í gagn­rýni á atburði síð­ustu daga lækka umtals­vert í fylgi. Flokkur fólks­ins mæld­ist með 8,8 pró­sent stuðn­ing á fyrra tíma­bil­inu en 5,1 pró­sent frá 6. apr­íl. Fylgi Mið­flokks­ins mæld­ist 4,3 pró­sent frá 17. mars til 6. apríl en 3,9 pró­sent eftir það. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem á ekki full­trúa á þingi fór úr 4,8 í 4,2 pró­sent fylgi á milli tíma­bil­anna sem könn­unin náði yfir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent