Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir óumdeilt að hvalveiðar hafi ekki haft mikla efnahagslega þýðingu fyrir þjóðarbúið á síðustu árum og að óbreyttu sé það fátt sem rökstyður heimildir til áframhaldandi veiða eftir að slíkar falla úr gildi á næsta ári. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag bendir hún á að síðustu þrjú ár hafi engin stórhveli verið veidd og aðeins ein hrefna á síðasta ári. „Fátt bendir til þess að það sé efnahagslegur ávinningur að því að stunda þessar veiðar, þar sem þau fyrirtæki sem hafa til þess leyfi hafa getað veitt hval síðustu ár en hafa ekki gert það. Ástæður þessa geta verið nokkrar en kannski einfalda skýringin sú að viðvarandi tap af þessum veiðum sé líklegust.“
Svandís skrifar að frá því að hvalveiðar í atvinnuskyni hófust á nýjan leik árið 2006 hafi verið veiddar nokkur hundruð langreyðar og talsverður fjöldi af hrefnu. „Þessar veiðar hafa verið umdeildar þar sem að annars vegar sjónarmið eru uppi um að þessar veiðar þjóni ekki þjóðhagslegum hagsmunum Íslands og hins vegar sjónarmið um að það komi ekki öðrum við en Íslendingum hvort við kjósum að leyfa veiðar á stofnum sem eru ekki í útrýmingarhættu.“
Núverandi veiðiheimildir gilda út árið 2023 og að óbreyttu verður því engin veiði heimil á hvölum frá árinu 2024. „Sýna þarf fram á að það sé efnahagslega réttlætanlegt að endurnýja veiðiheimildir,“ skrifar Svandís og minnir á að í sögulegu samhengi hafi hvalveiðar haft neikvæð áhrif á útflutningshagsmuni landsins. Orðsporsáhættan sem fylgi því að viðhalda þessum veiðum áfram sé talsverð þó að hún sé illmælanleg.
Ráðherrann skrifar að þrátt fyrir að hvalveiðar við Íslandsstrendur séu sjálfbærar í þeim skilningi að ekki sé verið að ganga um of á stofnstærð þá sé „hæpið að halda því fram að veiðarnar séu sjálfbærar í félagslegum eða efnahagslegum skilningi“. Japanir hafa verið stærstu kaupendur á hvalkjöti en neysla á því fer minnkandi ár frá ári. „Því ætti Ísland að taka þá áhættu að viðhalda veiðum sem hafa ekki skilað efnahagslegum ábata til þess að selja vöru sem lítil eftirspurn er eftir?“
Japanir gengu úr Alþjóðahvalveiðiráðinu í byrjun árs 2019 og veiða nú sjálfir hvali í sinni lögsögu. „Að óbreyttu er því fátt sem rökstyður það að heimila hvalveiðar eftir árið 2024,“ skrifar Svandís. Á þessu ári verður unnið mat á mögulegum þjóðhagslegum og samfélagslegum áhrifum slíkrar ákvörðunar.