Rafmagnsverð í hæstu hæðum í Noregi

Orkan kostar sífellt fleiri krónur og aura hjá nágrönnum okkar í Noregi. Fyrst urðu Sunnlendingar illa úti en nú hefur orkukrísan náð norður í land. Beðið er eftir blæstri svo vindorkuverin skili sínu.

Tromsø í Norður-Noregi.
Tromsø í Norður-Noregi.
Auglýsing

„Við höfum fengið góða áminn­ingu um að við erum tengd umheim­in­um,“ segir Johnny Hor­dal, fram­kvæmda­stjóri orku­fyr­ir­tæk­is­ins Salten sem er í eigu nokk­urra sveit­ar­fé­laga í Mið- og Norð­ur­-Nor­egi. Þessi orð lét hann falla í morgun eftir að met­hækk­anir urðu á raf­orku­verði á einmitt þessu svæði lands­ins. Orku­verðið hefur ekki verið hærra frá því árið 2010.

Auglýsing

Nor­egi er skipt upp í verð­lags­svæði þegar kemur að raf­orku. Á nyrsta svæð­inu hækk­aði verðið um hvorki meira né minna en 341 pró­sent í dag, segir í frétt NRK um mál­ið. Með­al­verð á kílóvatt­stund (kWst) fór þá í 212 norska aura, rúm­lega 30 íslenskar krón­ur. Það er venju­lega á bil­inu 20-50 aur­ar. Á morgun er gert ráð fyrir að með­al­verðið hækki í 244 aura eða í tæp­lega 35 íslenskar krón­ur.

Á línuritinu sem byggir á gögnum frá Nord Pool sést hvernig orkuverð mun sveiflast á morgun, miðvikudag, eftir landssvæðum. Mynd: NRK

Hækk­an­irnar nú eiga sér ýmsar skýr­ingar en kóln­andi veður á þar m.a. hlut að máli. Eft­ir­spurnin eykst og verðið hækk­ar. „Þá er vind­ur­inn hættur að blása,“ sagði Hors­dal. Háþrýsti­svæði liggur sem mara yfir norð­ur­hluta Nor­egs og gæti gert það í nokkrar vikur í við­bót. Og á meðan fram­leiða vind­orku­verin lítið raf­magn. Sam­kvæmt spá Nord Pool, raf­orku­mark­aðs Norð­ur­land­anna, mun hámarks­verð í Nor­egi verða 5 norskrar krón­ur, 71,44 íslenskar, á kílóvatt­stund milli kl. 17 og 18 í dag en þá er eft­ir­spurnin lang­mest.

Raf­orku­verð syðst í Nor­egi hefur verið óvenju hátt síð­ustu vikur og mán­uði vegna þess að sá hluti orku­kerf­is­ins er tengdur við norð­ur­hluta Evr­ópu. Íbúar í Norð­ur­-Nor­egi hafa greitt lægra orku­verð en nú gætu þeir þurft að róta í budd­unni eftir svip­uðum fjölda króna og landar þeirra suður frá. „Það eru dýrar vikur fram und­an,“ segir Hors­dal við NRK.

En um leið og vetr­ar­vindar fara að blása mun verðið lækka, segir hann.

Norð­ur­áls­samn­ingur tengdur Nord Pool

Annar raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar við Norð­urál á Grund­ar­tanga hefur frá árinu 2019 verið tengdur við Nord Pool í stað álverðs. Með þess­ari teng­ingu fær Lands­virkjun sam­bæri­legt raf­orku­verð og önnur orku­fyr­ir­tæki á Norð­ur­lönd­um.

Mynd: Af vef Norðuráls

Á síð­asta ári var gerður við­auki við þennan samn­ing Norð­ur­áls og Lands­virkj­unar og samið um að árið 2024 taki verð­teng­ing við Nord Pool enda og samn­ing­ur­inn verði á föstu verði eftir það. Nú í sept­em­ber var svo gerður enn einn við­auki við samn­ing­inn þar sem dregið var úr verð­teng­ingu við Nord Pool að hluta til í stað fasts verðs. Einnig var bætt við álverðsteng­ingu á fast verð síðar á samn­ings­tím­an­um.

Líkt og sjá má á með­fylgj­andi mynd hér að ofan, sem fengin er af vef Norð­ur­áls, hefur raf­orku­verð sveifl­ast mjög frá því að teng­ing var gerð við Nord Pool árið 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent