Réttast að forstjóri og stjórn Bankasýslunnar víki til þess að endurheimta traust

Þingmaður Vinstri grænna telur gagnrýnivert hvernig Bankasýsla ríkisins hafi staðið að sölu í hluta í Íslandsbanka. Hann telur að til að auðvelda endurheimt trúverðugleika stofnunarinnar verði forstjóri og stjórn hennar að víkja.

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Bjarni Jóns­son, þinga­maður Vinstri grænna, segir ljóst að mörgum spurn­ingum sé ósvarað og að fara verði ofan í saumana á ferl­inu við sölu á hlut Íslands­banka, sem Banka­sýsla rík­is­ins sá um. Telur hann að trú­verð­ug­leiki stofn­un­ar­innar hafi beðið hnekki og að það myndi auð­velda henni að end­ur­heimta traust ef for­stjóri og stjórn hennar myndu víkja. Þetta skrifar Bjarni í pistli sem birt­ist á Vísi í morg­un.

Þar segir Bjarni jafn­framt að ekki eigi að koma til álita að selja frek­ari hluti í Íslands­banka fyrr en öll kurl séu komin til grafar um fram­kvæmd­ina og að hags­munir almenn­ings verði tryggðir ásamt þeirri umgjörð við­skiptasið­ferðis sem beri að hafa við sölu rík­is­eigna.

Auglýsing

Þó varar Bjarnir við því að grafið sé undan stöðu og hlut­verki Rík­is­end­ur­skoð­unar sem sjálf­stæðrar og óháðrar eft­ir­lits­stofn­unar Alþing­is, en margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa kallað eftir því að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skipuð vegna máls­ins. Bjarni segir hins vegar að fyrsta og rök­rétta skrefið sé úttekt Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, sem hingað til hafi hlotið traust þing­manna og þing­nefnda til úttekta á smærri og stærri málum sem hafi komið til álita.

Rann­sókn Rík­is­end­ur­skoð­unar úti­loki ekki að hægt verði að und­ir­búa frek­ari úttektir á ferl­inu á meðan á vinnu stofn­un­ar­innar standi, ef til þess séu ríkar ástæð­ur. „Ef að und­an­geng­inni úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur í ljós að þörf sé á að fara frekar ofan í saumanna á ein­stökum þátt­um, þá vænti ég þess að það verði gert,“ skrifar Bjarni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent