Reykvískt hverfi, sem óljóst er hvort megi rísa, til sýningar í Ósló

Deilur hafa staðið yfir á milli ríkis og borgar um heimild til að hefja uppbyggingu íbúða í svokölluðum Nýja-Skerjafirði. Hönnunarleiðbeiningar vegna almenningsrýma og gatna hverfisins eru til sýnis á arkitektúrhátíð í Ósló.

Teikning af mögulegri götumynd í Nýja-Skerjafirði.
Teikning af mögulegri götumynd í Nýja-Skerjafirði.
Auglýsing

Hönn­un­ar­leið­bein­ingar fyrir almenn­ings­rými og götur í Nýja-Skerja­firði, sem deild borg­ar­hönn­unar hjá Reykja­vík­ur­borg vann að í sam­starfi við sænsku arki­tekt­úr­stof­una Mandaworks, voru á meðal sex verka sem valin voru til sýn­ingar á arki­tekt­úr­há­tíð­inni Ósló­ar­þrí­ær­ingn­um, Oslo Architect­ure Triennale, sem hófst form­lega í gær.

Alls bár­ust 383 fram­lög í opna sam­keppni hátíð­ar­inn­ar, frá öllum heims­horn­um, sam­kvæmt því sem skipu­leggj­endur Ósló­ar­þrí­ær­ings­ins segja, en þema þrí­ær­ings­ins þetta árið eru hverfi borga og bæja, skipu­lagn­ing þeirra og hlut­verk.

Sér­stök áhersla er á nor­rænar borgir, og segir hinn danski Christ­ian Pagh, sem er fram­kvæmda­stjóri og list­rænn stjórn­andi Ósló­ar­þrí­ær­ings­ins í ár, að borgir á Norð­ur­lönd­unum geti lært mikið hver af annarri og í sam­ein­ingu ef til vill orðið fyr­ir­myndir ann­arra, við sköpun mann­vænna hverfa.

Auglýsing

Blaða­maður Kjarn­ans er staddur í Ósló og hefur sótt við­burði opn­un­ar­daga hátíð­ar­inn­ar. Á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag sagði Pagh að bæði hér í Ósló og á alþjóða­vísu væri mikil umræða um þessar mundir um gæði hús­næðis og aðgengi að því.

Ekki síst væri þessi umræða hávær nú í kjöl­far þess að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, því þegar hann geis­aði sem harð­ast hafi sést glögg­lega að hverfi margra borga búa yfir mjög mis­mun­andi gæðum og að slæmt skipu­lag bitn­aði bein­línis á heilsu og lífs­gæðum íbú­anna.

Þessi þáttur skipu­lags, að hverfi snú­ist um annað og meira en að vera bara staðir til þess að sofa, þarf meiri athygli að mati Pagh. Því er sjónum beint að hverf­unum í efn­is­tökum þrí­ær­ings­ins í ár.

Í umsögn dóm­nefndar sagði að í hönn­un­ar­leið­bein­ingum Nýja-Skerja­fjarðar væri farið yfir fjölda lausna til þess að tryggja hágæða­al­menn­ings­rými, með áherslu á að móta borg­ar­landið á milli bygg­ing­anna; garða, torg og göt­ur. Í hönn­un­ar­leið­bein­ing­unum er lagt upp með að bílar verði víkj­andi, hæg­fara og lítt áber­andi á yfir­borði, á meðan að göt­urnar verði staðir sem styðji við lífið í hverf­inu. Bíla­stæði í hverf­inu eiga að mestu að verða í mið­lægu bíla­stæða­húsi.

Kynn­ingin á hönn­un­ar­leið­bein­ingnum á sjálfri hátíð­inni er í formi víd­eó­verks, sem verður til sýnis í gamla Munch-safn­inu í Tøyen-hverf­inu í Ósló næsta mán­uð­inn, en safna­hús­ið, sem ekki hefur enn fengið nýtt hlut­verk til fram­tíðar frá því að nýja Munch-safnið við sjáv­ar­síð­una var tekið í notkun í fyrra, er aðal­vett­vangur arki­tekt­úr­þrí­ær­ings­ins.

En fær hverfið að rísa sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi skipu­lagi?

Þrátt fyrir að hönn­un­ar­leið­bein­ing­arnar fyrir hverfið hafi mælst vel fyrir hjá dóm­nefnd­inni í Ósló er sem kunn­ugt er alls óvíst hvenær hægt verður að fara að vinna eftir þeim, og sam­þykktu deiliskipu­lagi svæð­is­ins, sem felur í sér bygg­ingu alls um 690 íbúða í fyrri hluta upp­bygg­ing­ar­inn­ar, auk upp­bygg­ingar nýs grunn­skóla.

Deilur hafa staðið yfir á milli inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar um hvort heim­ilt sé að hefja upp­bygg­ing­una í Nýja-Skerja­firði og hefur komið fram að starfs­hóp­ur, svo­kall­aður „sprett­hóp­ur“, eigi að skila nið­ur­stöðu um málið í upp­hafi októ­ber­mán­að­ar.

Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins og inn­­við­a­ráð­herra, sagði í nýlegu svari við skrif­legri fyr­ir­spurn á þingi að ekki væri unnt að fall­­ast á áætl­­­anir Reykja­vík­­­ur­­borgar um byggð­ina í Skerja­­firði að óbreyttu.

Í svar­inu sagði að óásætt­an­­legt væri að farið yrði í upp­bygg­ingu hverf­is­ins án þess að full­kannað væri hvort og þá með hvaða hætti tryggt yrði að þær myndu ekki hafa nei­­kvæð áhrif á rekstr­­ar­ör­yggi Reykja­vík­­­ur­flug­vall­­ar.

„Ráð­herra mun því hvorki geta fall­ist á að farið verði í umræddar fram­­kvæmdir í Skerja­­firði né aðrar slíkar fram­­kvæmdir í næsta nágrenni við flug­­­völl­inn nema sýnt hafi verið með óyggj­andi hætti fram á að flug­­ör­yggi og rekstr­­ar­ör­yggi sé ekki stefnt í hætt­u,“ sagði í svari ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent