Ríkið leggur 15 milljarða króna Keldnalandið inn í Betri samgöngur

Keldnalandið verður þróað til að samræmast áformum um þéttingu byggðar á samgöngu- og þróunarás Borgarlínu. Deiliskipulag fyrir fyrstu uppbyggingarreiti á að þróa á næsta ári. Það mun taka 20 mínútur að komast með Borgarlínu frá Keldum á Lækjartorg.

betir samgöngur
Auglýsing

Rík­is­sjóður og Betrí sam­göngur ohf., félag sem ríkið og sveit­­ar­­fé­lög höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­is­ins stofn­uðu og eiga í sam­ein­ingu, hafa und­ir­ritað samn­ing um að félagið taki við Keldna­land­inu svo­kall­aða, alls um 116 hekt­ara landi við Keldna­holt og Keld­ur. Kaup­verðið er 15 millj­arðar króna en greitt verður fyrir það með útgáfu nýrra hluta í Betri sam­göng­um. Ríkið er því í raun að leggja landið inn í félagið án greiðslu. Stærð þess að flata­máli er svipuð og mið­borgar Reykja­vík­ur. 

Samn­ing­ur­inn er gerður á grund­velli sam­göngusátt­mál­ans sem und­ir­rit­aður var árið 2019. Þar kom fram að allur ábati rík­is­ins af sölu og þróun Keldna­lands­ins myndi renna til upp­bygg­ingar sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ef ábati verk­efn­is­ins verður meiri en þeir 15 millj­arðar króna sem áætlað er munu þeir fjár­munir renna til Betri sam­gangna. 

Auglýsing
Félagið mun sam­kvæmt samn­ingnum ann­ast upp­bygg­ingu Keldna­lands­ins í sam­vinnu við skipu­lags­yf­ir­völd.

Í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að það eigi að gera slíkt með „það að mark­miði að hámarka virði lands­ins og upp­bygg­ing­ar­mögu­leika eins og kostur er með hag­kvæmu skipu­lagi og nýt­ing­ar­hlut­falli sem sam­ræm­ist áformum um þétt­ingu byggðar á sam­göngu- og þró­unarás Borg­ar­lín­u.“

20 mín­útur með Borg­ar­línu frá Keldum á Lækj­ar­torg

Í til­kynn­ing­unni er rifjað upp að í sam­göngusátt­mál­anum hafi verið ákveðið að flýta upp­bygg­ingu fram­tíð­ar­hverfis að Keldum sem og fram­kvæmdum við Borg­ar­línu sem fara á um hverfið endi­langt. Þjón­usta Borg­ar­línu er ein helsta for­senda þess að hægt sé að umbreyta Keldum og Keldna­holti í þétta og bland­aða byggð með íbúð­um, þjón­ustu og atvinnu­hús­næði. Áætl­aður ferða­tími með Borg­ar­línu milli Keldna og Lækj­ar­torgs er um 20 mín­út­ur.

Þar segir enn fremur að Betri sam­göngur hafi í sam­starfi við skipu­lags­yf­ir­völd unnið að und­ir­bún­ingi þró­unar svæð­is­ins síðan um mitt síð­asta ár. „Snemma á nýju ári verður farið í alþjóð­lega sam­keppni um þró­un­ar- og upp­bygg­ing­ar­á­ætlun fyrir Keldur og Keldna­holt í sam­vinnu félags­ins og Reykja­vík­ur­borg­ar. Í fram­hald­inu verður unn­inn ramma­hluti Aðal­skipu­lags Reykja­vík­ur, deiliskipu­lags- og upp­bygg­ing­ar­á­ætl­anir á grunni verð­launa­til­lögu í sam­keppn­inni. Stefnt er að því að hægt verði að þróa deiliskipu­lag fyrir fyrstu upp­bygg­ing­ar­reit­ina á svæð­inu haustið 2023.“

900 millj­ónir vegna tafa á flýtigjöldum

Þegar sam­­göngusátt­­mál­inn var gerður var hann kynntur sem 120 millj­­­arða fjár­­­­­fest­ing í sam­­­göng­u­innviðum á höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­inu. Stærsti kostn­að­­ar­liður sátt­­mál­ans er hin svo­­kall­aða Borg­­ar­lína. Þá var boðað að ríkið kæmi með 45 millj­­­arða króna að borð­inu, að með­­­­­töldu sölu­verð­­­mæti Keldna­lands­ins, og sveit­­­ar­­­fé­lögin 15 millj­­­arða króna. Þá stóðu eftir 60 millj­­­arð­­­ar, sem boðað var að inn­­­heimta skyldi með sér­­­­­stökum flýti- og umferð­­­ar­­­gjöld­um til árs­ins 2033. Sú tala hefur nú verið upp­­­reikn­uð, að teknu til­­liti til verð­lags­breyt­inga, og er nú áætluð 74,6 millj­­arðar króna. 

Ef upp­­hæð­inni er skipt jafnt yfir árin frá og með 2024 og út samn­ings­­tím­ann þá nema árlegar tekjur af flýti- og umferð­­ar­­gjöldum 7,5 millj­­örðum króna.

Meiri­hluti fjár­­laga­­nefnd­­ar, skip­aður nefnd­­ar­­mönnum stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja, lagði til fyrr í þessum mán­uði að Betri sam­­­göngur myndi fá 900 millj­­ónir króna úr rík­­is­­sjóði á næsta ári. Ástæðan er sú að ekki kemur til álagn­ingar flýti- og umferð­­ar­gjalda á árinu 2023 eins og gert var ráð fyrir í sátt­­mála um sam­­göngur á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu frá árinu 2019 og eiga að fjár­­­magna rekstur félags­­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent