Sævar Helgi um sögulega mynd: Kannski býr einhver þarna?

Þeirra hefur verið beðið með mikilli óþreyju, fyrstu mynda frá hinum magnaða Webb-geimsjónauka. Til stóð að birta þær opinberlega í dag en Bandaríkjaforseti gat ekki setið á sér. „Gullfallegar vetrarbrautir,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Hér er hún! Myndin sem sýnir okkur lengra út í geim en nokkru sinni fyrr.
Hér er hún! Myndin sem sýnir okkur lengra út í geim en nokkru sinni fyrr.
Auglýsing

„Sögu­leg stund! Fyrsta myndin frá Webb-­geim­sjónauk­an­um!“

Það er ekki annað hægt en að smit­ast af ákefð Sæv­ars Helga Braga­son­ar, vís­inda­miðl­ara og fjöl­miðla­manns, sem getur vart hamið kæti sína eftir að hafa barið fyrstu mynd­ina sem tekin var með sjón­auka sem kenndur er við James Webb og birt var í gær. Það stóð reyndar ekki til að birta mynd­ina og fleiri sem teknar voru af fjar­lægum vetr­ar­brautum fyrr en í dag en Joe Biden Banda­ríkja­for­seti var lík­lega álíka upp­num­inn og Sævar Helgi og birti eina í gær. Sýn­is­horn af alheimi.

Auglýsing

„Guuuuull­fal­legar vetr­ar­braut­ir, magn­aðar upp af þyngd­ar­lins­u!“ skrifar Sævar Helgi á Face­bok-­síðu sína í gær­kvöldi. Hann segir björtu gul­hvítu blett­ina í miðj­unni vera þyrp­ing spor­völu­þoka í 4,6 millj­arða ljósára fjar­lægð sem hafi svo mik­inn massa að hún verkar eins og linsa sem magnar upp ljós frá enn fjar­læg­ari vetr­ar­brautum (boga­dregn­ar). „Þetta er skýrasta mynd sem tekin hefur verið af dauf­ustu fyr­ir­bærum sem sést hafa í alheim­in­um,“ bendir hann á og segir nýtt skeið í stjarn­vís­indum haf­ið.

Sævar Helgi Bragason.

„Hugsið ykk­ur!“ heldur hann áfram í ummælum við færslu sína sem margir tjáð sig um. „Þarna er þyr­il­þoka svipuð þeirri sem við búum í. Kannski býr ein­hver þarna? Stjörnur á himn­inum þeirra jafn strjálar og á næt­ur­himn­inum okk­ar. Og útsýnið þaðan til okkar er svipað því sem við sjá­um. Þau sjá okkur eins og við litum út fyrir millj­örðum ára. Skyldu þau eiga geim­sjónauka lík­a?“

Í dag mun veislan halda áfram. Þá verða birtar myndir af Kjal­ar­þokunni, „stór­glæsi­legri stjörnu­verk­smiðju í ríf­lega 7000 ljósára fjar­lægð; glæsi­legum hópi vetr­ar­brauta sem kall­ast Kvin­tett Steph­ans; NGC 3132 (Suð­ur­hring­þokunni) sem er leifar dáinnar lágmassa­stjörnu sem svip­aði til sól­ar­innar okkar – og, síð­ast en ekki síst, fáum lit­róf af and­rúms­lofti fjar­reiki­stjörnu sem lík­ist Júpít­er,“ skrifar Sævar Helgi.

Við bíðum líka spennt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent