Samband milli kynjajafnréttis og hagvaxtar: Hæfara fólk fæst til starfa

konur.jpg
Auglýsing

Lík­urnar á að fá hæf­asta fólkið til að gegna til­teknum störfum aukast til muna með auknu fram­boði af starfs­fólki, svo sem þátt­töku kvenna á almennum vinnu­mark­aði. Áður fyrr höfðu konur síður eða enga mögu­leika á að gegna ýmsum stöðum og störfum í þjóð­fé­lag­inu. Það þýddi að minna fram­boð var af starfs­kröftum til starfa í stéttum sem áður þóttu karla­stétt­ir, eins og fram­kvæmda­stjór­ar, læknar og flug­menn. Grein­ing­ar­deild Arion banka fjallar í dag um hvernig kynja­jafn­rétti stuðlar að efna­hags­legum fram­förum og útskýrir meðal ann­ars með dæmi af vinnu­mark­aði, um starfs verð­bréfa­miðl­ara, sem lengi hefur verið hefð­bundið karla­starf.

Greiningardeild Arion banka kynjajafnrétti

Auglýsing


Með til­komu kvenna á markað fyrir verð­bréfa­miðl­ara eykst með­al­hæfni þeirra umtals­vert eða úr 40 í 45 í þessu dæmi. Með því að geta ráðið verð­bréfa­miðl­ara úr stærri hóp eykst sam­keppni og þar með líkur á því að hæf­asta fólk­ið. Slíkt eykur að öllu óbreyttu fram­leiðni sem eykur hag­vöxt. Svipað getur átt við margar aðrar stéttir og ekki síður störf sem áður þóttu ein­göngu henta konum en karlar hafa í auknum mæli sótt í, t.d. leik­skóla­kennslu,“ segir í pistli grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar. Urm­ull af rann­sóknum síð­ustu ár bendi til þess að kynja­jafn­rétti geti stuðlað að hag­vexti og efna­hags­legum fram­för­um. „Or­saka­sam­hengið þarna á milli er reyndar ekki ful­ljóst, að því leyti að efna­hags­legar fram­farir geta m.a. fært völd nær konum og þannig aukið kynja­jafn­rétti. Flestir virð­ast í það minnsta sam­mála því að orsaka­sam­hengið virki í báðar áttir að ein­hverju leyti, en þó eru sumir sem hafa fundið mun sterk­ari áhrif kynja­jafn­réttis á hag­vöxt heldur en hið gagn­stæða.“ Eft­ir­far­andi mynd er birt sem sýnir tengsl lands­fram­leiðslu á mann og kynja­jafn­rétti.



Greiningardeild Arion banka kynjajafnrétti



„Svo virð­ist sem kynja­jafn­rétti á Íslandi sé með því mesta sem ger­ist í heim­in­um. Það er líka svo að miklar efna­hags­legar fram­farir hafa fylgt auknu kynja­jafn­rétti síðan í byrjun 20. ald­ar. Þó að margt komi þarna til hefur atvinnu­þát­taka kvenna eflaust haft mikið að segja um það hve mik­ill hag­vöxtur hefur verið sl. 100 ár eða svo. Atvinnu­þát­taka kvenna jókst mjög á síð­ustu öld og var undir lok hennar nán­ast til jafns við atvinnu­þát­töku karla.“



Í lok grein­ar­innar segja sér­fræð­ingar grein­ing­ar­deild­ar­innar það vera rétt að taka fram að þeir eigi ekki svör á reiðum höndum um hvernig mark­miðum um jan­frétti skuli náð að fullu. „Það er t.d. ekki sjálf­gefið að boð og bönn geti stutt við jafn­rétti í hvers kyns mynd sem er. Engu að síður virð­ast vera sterk hag­fræði­leg rök fyrir því að standa þurfi vörð um kynja­jafn­rétti. Raunar er hægt að yfir­færa þau rök á að hvers kyns mis­rétti og ójöfn tæki­færi á grund­velli ann­ars en hæfi­leika ein­stak­linga sé skað­legt efna­hags­líf­inu. Það er eins með mannauð og önn­nur verð­mæti – það er öllum fyrir bestu að þau séu nýtt á sem hag­kvæm­astan og skyn­samastan hátt.“



Pist­ill grein­ing­ar­deildar Arion banka um kynja­jafn­rétti og efna­hags­legar fram­far­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None