Samfylkingin bætir aðeins við sig hjá Gallup – Vinstri græn dala hjá MMR

Stuðningur við ríkisstjórnina dregst saman um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða. Hann er mun minni en stuðningur við stjórnina mældist eftir að hún tók við 2017 en meiri en hann mældist nokkrum dögum fyrir síðustu kosningar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Litlar breyt­ingar eru á fylgi stjórn­mála­flokka milli mán­aða sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Þar ber helst til tíð­inda að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar eykst um 0,9 pró­sentu­stig og mælist nú 10,7 pró­sent en fylgi Pírata dregst saman um 0,8 pró­sentu­stig og mælist slétt ell­efu pró­sent.

Fylgi ann­arra flokka er nán­ast það sama og það var í lok októ­ber. Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru þeir flokkar sem njóta mest stuðn­ings. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­sent fylgi og Fram­sókn sá næst stærsti með 17 pró­sent fylgi. Vinstri græn fylgja þar á eftir með 13 pró­sent fylgi. Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er því 52,7 pró­sent, sem er 0,7 pró­sentu­stigum minna en fyrir mán­uði og 1,6 pró­sentu­stigum minna en flokk­arnir þrír fengu sam­an­lagt í kosn­ing­unum í sept­em­ber. 

Auglýsing
Stuðningur við rík­is­stjórn­ina dalar þó milli kann­anna um 2,1 pró­sentu­stig og mælist nú 60,1 pró­sent. Það er minni stuðn­­ingur en hún hafði í upp­­hafi starfs­­tíma síns eftir kosn­­ing­­arnar 2017 en meiri en sá stuðn­­ingur sem mæld­ist við hana nokkrum dögum fyrir síð­­­ustu kosn­­ing­­ar, þegar 52,7 pró­­sent lands­­manna sögð­ust styðja rík­­is­­stjórn­­ina. Stuðn­­ingur við hana hafði þá ekki mælst minni síðan í mars 2020, við upp­­haf COVID-far­ald­­ur­s­ins. 

Stjórn­ar­and­staðan með 42 pró­sent fylgi

Við­reisn mælist með alls 8,4 pró­sent, og  tapar hálfu pró­sentu­stigi milli mán­aða. Flokkur fólks­ins stendur nán­ast í stað milli kann­ana Gallup og mælist nú með 7,9 pró­sent fylgi.

Minnstur þeirra flokka sem eiga þing­menn mælist Mið­flokk­ur­inn, en 3,8 pró­sent lands­manna segj­ast styðja hann.

Það er minna fylgi en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem náði ekki inn á þing í kosn­ing­unum í sept­em­ber, mælist með en 4,4 pró­sent styðja þann flokk. 

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fimm á Alþingi mælist nú 41,9 pró­sent. 

Um net­könnun var að ræða sem gerð var dag­anna 1. til 30. nóv­em­ber 2021. Heild­ar­úr­taks­stærð var tíu þús­und manns og þátt­töku­hlut­fall var 51 pró­sent. Vik­mörk í könn­un­inni eru frá 0,6 til 1,2 pró­sent og því eru flestar breyt­ingar á fylgi flokka milli mán­aða innan þeirra.

MMR líka með könnun í dag

MMR birti líka nýja könnun á fylgi flokka í dag. Nið­ur­staða hennar er aðeins á skjön við það sem sést hjá Gallup og ber þar hæst til tíð­inda að Vinstri græn dala um tæp tvö pró­sentu­stig milli kann­anna og mæl­ast með 12,1 pró­sent fylgi. Það myndi gera Vinstri græn minni en Pírata, sem mæl­ast með 12,4 pró­sent fylgi, og flokkur for­sæt­is­ráð­herra því ekki þriðji stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt MMR.

Þá mælist Flokkur fólks­ins með 5,6 pró­sent fylgi hjá MMR, sem er 2,3 pró­sentu­stigum minna en hjá Gallup en ekki langt frá því fylgi sem flokk­ur­inn mæld­ist með um miðjan nóv­em­ber hjá MMRþ

Annað er nokkuð svip­að. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur nán­ast í stað og mælist með 22,5 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nokkuð stærri hjá MMR en Gallup, eða með stuðn­ing 18,2 pró­sent kjós­enda.

Fylgi Sam­fylk­ing­in­ar­innar dalar um 0,5 pró­sentu­stig milli kann­anna hjá MMR og mælist nú 10,6 pró­sent á meðan að Við­reiðsn bætir við sig einu pró­sentu og nýtur stuðn­ings níu pró­sent lands­manna. Mið­flokk­ur­inn stendur pikk­fastur í stað í 4,2 pró­sentum og fylgi Sós­í­alista­flokks­ins mælist fjögur pró­sent.

Könn­unin var fram­kvæmd 29. nóv­em­ber til 2. des­em­ber 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 933 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri. Könnun MMR er því fram­kvæmd á mun skemmra tíma­bili en könnun Gallup.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki