Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett drög að breytingu á reglugerð um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs og viðauka IV við sömu reglugerð í Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Drögin verða í samráðsgátt stjórnvalda í tvær vikur, en rúmar tvær vikur eru í næstu þingkosningar.
Taki breytt reglugerð gildi munu allir geta gefið blóð óháð kynhneigð, kyni, uppruna eða stöðu að öðru leyti. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að bætt verði inn í reglugerðina að það sé einfaldlega óheimilt að mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnanlegra sjónarmiða.
Í tilkynningu stjórnarráðsins segir að breytingin feli í sér að kynhegðun valdi ekki lengur varanlegri frávísun blóðgjafar. „Í staðinn er kveðið á um að blóðgjafi megi ekki hafa stundað áhættusamt kynlíf í fjóra mánuði fyrir blóðgjöf. Lögð er til skilgreining á því hvað telst vera áhættusamt kynlíf en í því felst að það sé kynlíf sem eykur verulega líkur á að alvarlegir smitsjúkdómar berist með blóði. “