Samkynhneigðir karlmenn fá að gefa blóð verði drög að reglugerð samþykkt

Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram drög að reglugerð í samráðsgátt stjórnvalda sem felur meðal annars í sér að kynhegðun valdi ekki lengur varanlegri frávísun blóðgjafar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sett drög að breyt­ingu á reglu­gerð um söfn­un, með­ferð, varð­veislu og dreif­ingu blóðs og við­auka IV við sömu reglu­gerð í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda til umsagn­ar. Drögin verða í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í tvær vik­ur, en rúmar tvær vikur eru í næstu þing­kosn­ing­ar. 

Taki breytt reglu­gerð gildi munu allir geta gefið blóð óháð kyn­hneigð, kyni, upp­runa eða stöðu að öðru leyti. Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að bætt verði inn í reglu­gerð­ina að það sé ein­fald­lega óheim­ilt að mis­muna blóð­gjöfum á grund­velli ómál­efn­an­legra sjón­ar­miða. 

Auglýsing
Um mikla breyt­ingu er að ræða, en í dag má ekki gefa blóð ef við­kom­andi hefur til að mynda ein­hvern tím­ann sprautað sig í æð eða vöðva með fíkni­efnum eða sterum, ert karl­maður sem hefur ein­hvern tím­ann haft kyn­mök við annan karl­mann eða hefur ein­hvern tím­ann stundað vænd­i. 

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins segir að breyt­ingin feli í sér að kyn­hegðun valdi ekki lengur var­an­legri frá­vísun blóð­gjaf­ar. „Í stað­inn er kveðið á um að blóð­gjafi megi ekki hafa stundað áhættu­samt kyn­líf í fjóra mán­uði fyrir blóð­gjöf. Lögð er til skil­grein­ing á því hvað telst vera áhættu­samt kyn­líf en í því felst að það sé kyn­líf sem eykur veru­lega líkur á að alvar­legir smit­sjúk­dómar ber­ist með blóði. “

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent