Samningar náðust eftir 20 klukkustunda setu í Karphúsinu

VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og samflot iðnaðar- og tæknifólks hefur náð samningi við Samtök atvinnulífsins um nýja kjarasamninga. Ríkisstjórnin kynnir yfirlýsingu vegna kjarasamninga í dag.

Setið var á fundum fram undir morgun í Karphúsinu og náðust samningar eftir fund sem hafði staðið í um 20 klukkustundir.
Setið var á fundum fram undir morgun í Karphúsinu og náðust samningar eftir fund sem hafði staðið í um 20 klukkustundir.
Auglýsing

Til stendur að VR, Lands­sam­band íslenskra verzl­un­ar­manna og sam­flot stétt­ar­fé­laga iðn­arð­ar- og tækni­fólks und­ir­riti nýjan kjara­samn­ing við Sam­tök atvinnu­lífs­ins kl. 13 í dag, í kjöl­far þess að setið var á fundum fram undir morgun á skrif­stofum rík­is­sátta­semj­ara í Borg­ar­túni.

Elísa­bet S. Ólafs­dóttir aðstoð­ar­rík­is­sátta­semj­ari segir í sam­tali við Kjarn­ann að samn­ingar hafi náðst undir morg­un, eftir um 20 klukku­stunda langan fund.

Í kjöl­farið hafi við­ræðu­nefnd­irnar sem voru í húsi á þeim tíma­punkti svo þurft að bera samn­ing­inn undir alla sem sátu við borðið og fá umboð samn­inga­nefnda til und­ir­rit­un­ar.

Auglýsing

Í því ljósi var ákveðið að bíða með und­ir­ritun samn­ing­anna þar til núna eftir hádeg­ið, til þess að vera ekki að ræsa fólk sem hafði haldið heim til hvíldar upp að nýju snemma í morg­un, segir Elísa­bet.

Samn­ing­arnir sem verða und­ir­rit­aðir kl. 13 í dag snerta kjör nærri 60 þús­und starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði.

Elísa­bet seg­ist ekk­ert geta tjáð sig um efni þeirra vegna trún­aðar og því getur hún ekki heldur stað­fest að um sé að ræða skamm­tíma­samn­inga af svip­uðum meiði og Starfs­greina­sam­bandið gerði við Sam­tök atvinnu­lífs­ins fyrr í mán­uð­in­um.

En svör við þeim spurn­ingum fást kl. 13, þegar fjöl­miðlar verða boðnir vel­komnir í Karp­húsið í Borg­ar­túni til þess að vera við­staddir und­ir­ritun kjara­samn­ing­anna.

Rík­is­stjórnin með yfir­lýs­ingu í dag

Fleiri tíð­inda er að vænta í dag. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja hafa boðað til blaða­manna­fundar í Ráð­herra­bú­staðnum í dag kl. 14:30, en þar stendur til að kynna yfir­lýs­ingu stjórn­valda í tengslum við kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent