Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Sautján af nítján aðildarfélögum SGS undirrituðu samninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag. Um er að ræða svokallaðan skammtímasamning en gildistími samningsins er frá 1. nóvember til 31. janúar 2024. „Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem kjarasamningur á almennum vinnumarkaði gildir frá sama tíma og sá eldri rennur út og í því eru fólgin mikil verðmæti fyrir launafólk,“ segir í tilkynningu á vef SGS.
Samkvæmt samningnum, sem enn a eftir að kynna fyrir félagsmönnum, hækka kauptaxtar frá 1. nóvember í ár um að lágmarki 35.000 krónur. Að auki felur samningurinn í sér lagfæringu á launatöflunni, sem gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mánuði.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði við RÚV að henni heyrist af samtölum sínum við forystumenn SGS og SA, að samningarnir séu mjög metnaðarfullir þótt þeir séu til skamms tíma.
Merkilegt sé að samningur taki við af samningi sem sé ekki algengt á íslenskum vinnumarkaði. „Við verðum svo bara að sjá hvernig gengur og verðum að vona að nú þegar ísinn hefur verið brotinn að það finnist farsæl lausn í öðrum kjaraviðræðum.“
Það skipti miklu máli að vera kominn með þennan samning í dag. „Ég vona að sjálfsögðu að aðrir finni lausnir þó að þær séu til skamms tíma, eðlilega, vegna óvissunnar í efnahagsmálum.“
VR, Landsamband íslenskra verslunarmanna (LÍV) og samflot iðn- og tæknigreina að þau hefðu tekið höndum saman í kjaraviðræðum sínum við SA. Innan þess samflots eru um 59 þúsund félagsfólk.
Bónusar í fiskvinnslu hækka um 8 prósent
Samkvæmt samningi SGS og SA hækka laun þeirra sem ekki taka laun eftir kauptöxtum, þ.e. eru á mánaðarlaunum, um 33.000 kr. frá 1. nóvember. Desember- og orlofsuppbætur taka jafnframt hækkunum. Desemberuppbót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofsuppbót verður 56.000 kr. á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2023. Kjaratengdir liðir samningsins hækka um 5% frá 1. nóvember og þá hækka bónusar og akkorð í fiskvinnslu um 8 prósent sem mun skila fiskvinnslufólki á bilinu 6.000-34.000 kr. hækkun á mánuði.
Hagvaxtarauka flýtt
Einnig náðist samkomulag um flýtingu hagvaxtarauka sem þýðir að hagvaxtaraukinn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóvember. Það mun skila ávinningi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mánuði og er hann meðtalinn í áðurnefndum taxta- og mánaðalaunahækkunum. Jafnframt var gert samkomulag um að með þessari hækkun og flýtingu komi ekki til frekara endurmats á hagvaxtarauka skv. kjarasamningnum frá 2019.
Kjarasamningurinn er framlenging á Lífskjarasamningnum sem gilti frá 2019-2022. Samningsaðilar eru sammála um að samningurinn styðji við kaupmátt launa auk þess að veita heimilum og fyrirtækjum fyrirsjáanleika á miklum óvissutímum. Samningurinn geti þannig byggt undir stöðugleika og skapað forsendur fyrir langtímasamningi.
Nú tekur við kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn meðal félagsmanna. Tilkynnt verður um afgreiðslu samningsins mánudaginn 19. á að liggja fyrir ekki síðar en mánudaginn 19. desember næstkomandi.
Eftirfarandi félög eiga aðild að samningnum:
AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélagið Hlíf og Stéttarfélag Vesturlands.