Samningar við Starfsgreinasambandið langt komnir – Reynt að fá VR um borð

Verið er að reyna að klára gerð kjarasamninga við Starfsgreinasambandið um 20 til 40 þúsund króna launahækkanir, auknar starfsþrepagreiðslur og flýtingu á útgreiðslu hagvaxtarauka. Samningar eiga að gilda út janúar 2024.

Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Auglýsing

Við­ræður Sam­taka atvinnu­lífs­ins og Starfs­greina­sam­bands­ins um gerð kjara­samn­inga eru á loka­metr­un­um. Umræddur samn­ingur á að gilda út jan­úar 2024 og yrði því til skemmri tíma en vant er þegar kjara­samn­ingar eru gerð­ir. 

Heim­ildir Kjarn­ans herma að unnið sé að því öllum árum að fá VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, að borð­inu en það sleit samn­ingum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins í síð­ustu viku. Þrátt fyrir þau slit mætti Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og samn­inga­nefnd félags­ins á fund hjá rík­is­sátta­semj­ara í gær ásamt full­trúum Lands­sam­bands íslenskra verzl­un­ar­manna og Starfs­greina­sam­bands­ins. Sá fundur stóð í þrettán tíma, og lengur en til stóð upp­haf­lega. 

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, svör­uðu ekki sím­tölum blaða­manna Kjarn­ans við vinnslu frétt­ar­inn­ar.

Fjögur pró­sent hækkun með 40 þús­und króna þaki

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur Starfs­greina­sam­bandið sam­þykkt í öllum meg­in­at­riðum að semja um fjög­urra pró­senta launa­hækkun í samn­ingum sem eiga að gilda til loka jan­úar 2024. Hækk­unin á að vera með 20 þús­und króna gólfi, þannig að eng­inn fari undir þá upp­hæð í hækk­un, og 40 þús­und króna þaki, þannig að eng­inn fari yfir þá upp­hæð. Til við­bótar koma starfs­ald­urs­þrepa­hækk­anir sem geta í mesta lagi verið 12 þús­und krónur á mán­uði en eru að með­al­tali um átta þús­und krónur á mán­uði.

Auglýsing
Þá hafa átt sér stað við­ræður um að flýta útgreiðslu hins svo­kall­aða hag­vaxt­ar­auka, sem þó er ekki hluti af yfir­stand­andi kjara­samn­ings­við­ræðum heldur eitt­hvað sem samið var um í lífs­kjara­samn­ing­unum í apríl 2019. Hann á að greið­ast út frá 1. maí 2023, en hann er um 13 þús­und krónur á mán­uði. Kjarn­inn hefur heim­ildir fyrir því að Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafi boðið að flýta hag­vaxt­ar­auk­anum til 1. mars en að því hafi verið hafn­að. Vilji Starfs­greina­sam­bands­ins sé að flýta honum til allt að 1. nóv­em­ber 2022.  

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mynd: Samtök atvinnulífsins.

Efl­ing, sem lagt hefur fram til­boð til Sam­taka atvinnu­lífs­ins um 56.700 króna flata krónu­tölu­hækkun á öll laun og 15.000 króna fram­færslu­upp­bót til við­bót­ar ­fyrir utan útgreiðslu hag­vaxt­ar­auka fyrir samn­ing út jan­úar 2023, er ekki hluti af þessum við­ræð­u­m. 

Í frétta­til­kynn­ingu sem Efl­ing sendi frá sér í gær­morgun sagði að samn­inga­nefnd félags­ins teldi önnur stétt­ar­fé­lög hafa gert mis­tök með því að fall­ast á aðferða­fræði pró­sentu­hækk­ana í við­ræðum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins. „Til­lögur hafa verið til umræðu þar sem gert er ráð fyrir tvö­falt meiri hækk­unum til hátekju­hópa en til lág­launa­fólks.“

Nið­ur­lægður þrisvar á sól­ar­hring

Ragnar Þór sagði í sam­tali við Kjarn­ann síð­ast­lið­inn föstu­dag, í kjöl­far þess að við­ræðum var slit­ið, að launa­fólk hefði „verið nið­­ur­lægt þrisvar á rúmum sól­­­ar­hring. Fyrst af seðla­­banka­­stjóra, svo af fjár­­­mála­ráð­herra og loks af Sam­­tökum atvinn­u­lífs­ins.“ 

Þar vís­aði hann í að ákvörðun Seðla­­banka Íslands um að hækka stýri­vexti á mið­viku­dag, og orð Ásgeirs Jóns­­sonar um að ástæður þeirrar hækk­­unar væri eyðsla heim­il­anna, hefði sent kjara­við­ræður á mjög við­­kvæman stað. Í kjöl­farið hefði Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra boðað aðila vinn­u­­mark­að­­ar­ins á fund til að reyna að draga úr spenn­unni sem hafði mynd­­ast. „Fjár­­­mála­ráð­herra kemur svo nán­­ast strax í kjöl­farið með yfir­­lýs­ingu á Pen­inga­­mála­fundi Við­­skipta­ráðs þar sem hann tekur nán­­ast undir hvert orð seðla­­banka­­stjóra og segir að við þurfum að vakna. Hér sé vanda­­málið fyrst og fremst kröfur verka­lýðs­hreyf­­ing­­ar­inn­­ar. Þegar til­­­boð Sam­­taka atvinn­u­lífs­ins um skamm­­tíma­­samn­ing bætt­ist við var alveg ljóst að við gætum ekki dvalið við þetta leng­­ur. Ég var með umboð til að slíta við­ræðum og nýtt það umboð. Ég fund­aði svo með samn­inga­­nefnd­inni í morg­un  og þar er algjör ein­hugur um þessa ákvörð­un. Hún er tekin af yfir­­­vegun og upp­­lýstu mati á stöð­unni í hag­­kerf­in­u.“

Kjarn­inn hefur heim­ildir fyrir því að að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins hafi boðið VR og Starfs­greina­sam­band­inu að lág­­marki 17 þús­und krónur ofan á launa­­taxta og að hámarki 30 þús­und krónur í launa­hækk­­­anir í samn­ingi sem átti að gilda í 14 mán­uði, eða út jan­úar 2024. Matið fyrir helgi var að kostn­að­­ar­hækk­­­anir heim­ila lands­ins vegna auk­innar greiðslu­­byrði lána, hækk­­ana á verði á vöru, þjón­­ustu og gjöldum vegna verð­­bólgu, sem nú er 9,3 pró­sent, og hækk­­ana sé langt umfram þær töl­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent