Segir að Ísland sé réttarríki – en ekki ríki geðþóttavalds og lögleysu

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins fjallaði m.a. um gildi kristinnar trúar á Alþingi í dag og sagði að það væri sorglegt að sjá hvernig forsætisráðherra hefði upp á síðkastið mátt sitja undir „rætinni illmælgi“ af hálfu sóknarprests.

Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Birgir Þór­ar­ins­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur það sorg­legt hvernig Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafi upp á síðkastið mátt sitja undir „ræt­inni ill­mælgi“ af hálfu Dav­íðs Þórs Jóns­sonar sókn­ar­prests vegna ákvarð­ana yfir­valda í útlend­inga­mál­um.

Þetta sagði hann undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Það er eins­dæmi að vígður þjónn þjóð­kirkj­unnar skuli vega svo ómak­lega að for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Umræddur þjóð­kirkju­prest­ur, sem fengið hefur ávítur frá bisk­upi Íslands, mætti eins og aðrir sem láta sig þennan mála­flokk varða íhuga að máls­með­ferð er bundin í lög­um, sam­þykktum af Alþing­i,“ sagði hann.

Auglýsing

Ástæðan fyrir orðum Birgis var ummæli prests­ins í síð­ustu viku þar sem hann gagn­rýndi Vinstri græn og for­sæt­is­ráð­herra fyrir fyr­ir­hug­aðar brott­vís­anir tæp­lega 200 umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Birgir sagði að íslenskir ráða­menn, þar á meðal ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­inn­ar, hefðu enga heim­ild að lögum til að víkja frá nið­ur­stöðum sjálf­stæðra stofn­ana sem unnið hafa úr málum sam­kvæmt þeim kröfum sem til þeirra væru gerðar um rétt­láta máls­með­ferð og réttar­ör­yggi. „Við búum við lög­mæta skipan mála. Ísland er rétt­ar­ríki en ekki ríki geð­þótta­valds og lög­leysu.“

Þakk­aði Katrínu fyrir stuðn­ing við þjóð­kirkj­una

Birgir hóf mál sitt á því að segja að við byggjum í sam­fé­lagi sem mótað væri af alda­langri hefð í menntun og menn­ingu sem ætti rót sína að rekja til kristi­legra við­horfa til ein­stak­lings­ins og sam­fé­lags­ins.

Það er mik­il­vægt að þessi við­horf 'fáni'", 'sent': '\x1b„Það er mikilvægt að þessi viðhorf fái að heyrast á Alþingi.', 'token': '0d5b9268b0e193ceb54365ccca578184fa87b6da8365109521ea62295adfa72d', 'nonce': '55095462'}">fái að heyr­ast á Alþingi. Við sem þjóð stöndum á sögu­legum og menn­ing­ar­legum grunni krist­innar trúar og gilda. Íslenskt sam­fé­lag og krist­inn siður og gildi eiga enn sem áður sam­leið. Í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í októ­ber 2012 vildi meiri­hluti þjóð­ar­inn­ar, eða 51 pró­sent, ákvæði um þjóð­kirkju í stjórn­ar­skrá. Stjórn­völdum ber skylda til að styðja og vernda þjóð­kirkj­una. Um það er kveðið á í stjórn­ar­skránni.

Ég vil nota hér tæki­færið og þakka for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega fyrir hennar stuðn­ing við þjóð­kirkj­una í orði og verki. Undir for­ystu for­sæt­is­ráð­herra hefur verið end­ur­nýjað kirkju­jarða­sam­komu­lag ríkis og kirkju sem reynst hefur kirkj­unni traustur bak­hjarl og hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í að skapa henni fjár­hags­legt sjálf­stæði og örygg­i,“ sagði hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent