Segir að nú þurfi „að hvetja frjósemisgyðjuna til dáða“ og hækka þar með fæðingartíðni

Þingmaður Viðreisnar hvatti fólk til að ferðast í svefnherberginu á þingi í dag því velferðarsamfélagið geti ekki staðið undir sér ef fólk hættir að eignast börn. Fæðingartíðni er nú um 1,7 en þarf að vera 2,1 til að viðhalda mannfjöldanum.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Mynd: Skjáskot/Alþingi
Auglýsing

„Vel­ferð­ar­sam­fé­lagið stendur ekki undir sér ef fólk hættir að eign­ast börn,“ sagði Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, á Alþingi í dag. Þor­björg fjall­aði um fæð­ing­ar­tíðni íslenskra kvenna sem hefur dreg­ist saman um sem nemur hálfu barni síð­ustu tíu árum.

Þor­björg Sig­ríður vís­aði til orða Ernu Sol­berg sem hvatti Norð­menn til að eign­ast fleiri börn en fæð­ing­ar­tíðni þar í landi hefur einnig lækkað tölu­vert. „Hún sagði að hún þyrfti senni­lega ekki að útskýra hvernig þetta sé gert, né ætl­aði hún að gefa beinar skip­anir en henni var alvara því Norð­mönn­um, þeim fjölgar ekki nægi­lega,“ sagði Þor­björg.

Hún sagði ald­ur­spíramída á hvolfi ekki geta staðið undir vel­ferð. Hér á landi fædd­ust of fá börn til þess að halda jafn­væg­inu til lengri tíma lit­ið. Því ætti kapps­mál stjórn­valda að vera að stuðla að frek­ari barn­eignum að mati Þor­bjarg­ar.

Auglýsing

Þetta væri eitt­hvað til að hugsa um, nú þegar fólk dvelst mikið heima við. „Við eigum þess vegna að hvetja frjó­sem­is­gyðj­una til dáða, hvetja hana til að leggj­ast undir feld. Um þetta ættu lands­menn að hugsa núna þegar þeir ferð­ast inn­an­húss og inn­an­lands í sumar að gleyma þá ekki að ferð­ast kannski bara dálítið í svefn­her­berg­in­u.“

Fæð­ing­ar­tíðni lækk­aði milli ára

Sam­kvæmt nýlegum tölum Hag­stof­unnar fjölg­aði fæddum börnum milli áranna 2020 og 2019 en fæð­ing­ar­tíðni lækk­aði. Fjöldi lif­andi fæddra barna árið 2020 var 4.512 sam­an­borið við 4.452 á árinu 2019.

Fæð­ing­ar­tíðnin lækk­aði aftur á móti úr 1,75 árið 2019 niður í 1,72. Sam­kvæmt frétt á vef Hag­stof­unnar er fjöldi lif­andi barna á ævi hverrar konu helsti mæli­kvarði á frjó­semi. Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til að við­halda mann­fjölda til lengri tíma lit­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent