Segir að reynslan í COVID megi ekki renna út í sandinn – Fastur vinnustaður ekki eina leiðin

Þingmaður Viðreisnar veltir því fyrir sér hvers vegna Stjórnarráðið vinni ekki eftir fjarvinnustefnu. Þannig væri hægt að laða að starfsfólk, spara í skrifstofurekstri og ferðakostnaði og auka sveigjanleika starfsfólks.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að gerð verði úttekt á þeim tæki­færum sem fel­ast í fjar­vinnu og mark­vissri fjar­vinnu­stefnu fyrir íslenskan vinnu­mark­að.

Hún er ekki síst að horfa á hið opin­bera þar sem fjar­vinna getur átt við. „Með þessu gætu íslensk stjórn­völd orðið leið­andi um að festa fjar­vinnu­stefnu í sessi,“ sagði hún undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Auglýsing

„Fyrir heims­far­ald­ur­inn vissum við mörg um kosti fjar­vinnu en fáir höfðu kannski reynt hana af fullum þunga. En nú eru bæði ein­stak­ling­ar, fyr­ir­tæki og stofn­anir reynsl­unni rík­ari og þekkja hvaða jákvæðu áhrif fjar­vinna getur haft á starfs­á­nægju, fram­leiðni og sveigj­an­leika í starfi.

Fastur vinnu­staður er ekki eina leiðin og það er kostur fyrir margt fólk, ekki síst fjöl­skyldu­fólk, að geta unnið að heiman eða í bland­aðri vinnu á skrif­stofu. Reynslan og þekk­ingin sem við öðl­uð­umst í COVID má þess vegna ekki renna út í sand­inn,“ sagði hún.

Eitt ráðu­neyti af tólf með fram­sækna stefnu í þessum efnum

Þá telur Þor­g­björg að fjar­vinna geti einnig haft jákvæð áhrif á sam­göngur og umferð­ar­þunga og þannig stutt við mark­mið stjórn­valda í lofts­lags­mál­um.

„Fjar­vinnu­stefna felur í sér tæki­færi fyrir lands­byggð­irn­ar, að það sé hægt að stunda vinnu óháð búsetu. Finn­land hefur verið leið­andi um að liðka fyrir fjar­vinnu þegar kostur er á og sveigj­an­legur vinnu­tími hefur verið lög­festur þar í landi, alveg frá 1996 og árið 2020 tóku gildi lög þar í landi sem heim­ila starfs­fólki í fullu starfi rétt á að skipu­leggja um helm­ing vinnu­tíma síns, þ.e. hvar og hvenær vinnan er unn­in. Sem stendur er eitt ráðu­neyti hér af 12 með fram­sækna stefnu í þessum efn­um.

En ég velti því fyrir mér hvers vegna Stjórn­ar­ráðið allt vinnur ekki eftir fjar­vinnu­stefnu. Þannig væri hægt að laða að starfs­fólk, það væri hægt að spara í skrif­stofu­rekstri og ferða­kostn­aði, auka sveigj­an­leika starfs­fólks og leggja mark­miðum á sviði lofts­lags­mála lið. Íbúar á lands­byggð­unum gætu keppt um störf opin­berra stofn­ana með því að vinna í fjar­vinn­u,“ sagði hún jafn­framt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent