Segir Bjarta framtíð og Guðmund eiga að hugsa stöðu sína alvarlega

14264462909_a3e00b3c5e_b.jpg
Auglýsing

S. Björn Blön­dal, odd­viti Bjartrar fram­tíðar í Reykja­vík, segir að flokk­ur­inn og for­maður hans eigi að hugsa sína stöðu alvar­lega. Flokk­ur­inn þurfi að skoða hvert hann vill stefna og hvort hann vill verða afl í þessu landi. Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, ætlar ekki að tjá sig um gagn­rýni Heiðu Krist­ínar Helga­dótt­ur, fyrrum stjórn­ar­for­manns flokks­ins, á hann í dag. Eng­inn þing­maður Bjartrar fram­tíðar hefur lýst yfir afdrátt­ar­lausum stuðn­ingi við for­mann flokks­ins. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Heiða Kristín varp­aði sprengju inn í Bjarta fram­tíð í við­tali við Kjarn­ann á þriðju­dag. Þar sagði hún að það þyrfti mikið að ger­ast hjá Bjartri fram­tíð, flokk­inum sem hún tók þátt í að stofna, til að henni finn­ist ákjós­an­legt að stíga inn á þann vett­vang á ný, en hún hætti störfum fyrir flokk­inn í lok síð­asta árs. „Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð, hann er ekki vandi kjós­enda. Vand­inn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­son­ar] og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð.“

Heiða Kristín bætti um betur í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 í gær. Þar sagð­ist hún treysta sér full­kom­lega til þess að verða for­maður Bjartrar fram­tíð­ar. Ef það sé vilji fyrir því innan flokks­ins þá sé hún til­búin að bjóða sig fram til for­manns. Það getur hún gert í sept­em­ber næst­kom­andi þegar árs­fundur flokks­ins fer fram. Í þætt­inum gagn­rýndi hún Guð­mund, for­mann flokks­ins sem stofn­aði hann með henni á sínum tíma, og sagði hann hafa fengið ágætis tæki­færi til að sanna sig en að for­ysta hans væri aug­ljós­lega ekki að virka.

Auglýsing

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur hríð­fallið und­an­far­ið. Í könnun sem MMR birti í vik­unn­i ­sögð­ust ein­ungis 4,4 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa flokk­inn, sem er versta útkoma hans í mæl­ingum MMR á þessum kjör­tíma­bili. Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ing­um. Flokk­ur­inn mæld­ist með um 20 pró­sent fylgi í könn­unum í fyrra­haust.

Í fréttum RÚV í kvöld kom fram að eng­inn þing­manna Bjartrar fram­tíðar hefðu lýst yfir afdrátt­ar­lausum stuðn­ingi við Guð­mund Stein­gríms­son sem for­mann flokks­ins. Guð­mundur sagði sjálfur við RÚV að hann ætl­aði ekki að tjá sig um málið í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None