Segir landbúnaðarstyrki ekki virðast hafa bætt velferð bænda

Hagfræðiprófessor segir margar þverstæður spretta fram þegar styrkjakerfið í landbúnaði er skoðað. Samkvæmt honum er ekki að sjá að styrkirnir hafi bætt velferð bænda eða komið í veg fyrir fólksfækkun.

Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Auglýsing

Land­bún­að­ar­styrkir virð­ast hafa lítil eða engin áhrif til örv­unar eða við­halds atvinnu á lands­byggð­inni, auk þess sem þeir virð­ast ekki hafa bætt vel­ferð bænda. Þetta skrifar Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Lág laun þrátt fyrir háa styrki

Í grein sinni fer Þórólfur yfir með­al­laun í land­bún­aði, en þau námu ein­ungis 200 þús­und krónum á mán­uði árið 2019. Sam­kvæmt Þórólfi end­ur­spegla þessi laun, sem eru undir lág­marks­laun­um, lélega fram­leiðni í grein­inni, en fleiri vinnu­stundir eru að baki hverju starfi í land­bún­aði heldur en öðrum störf­um.

Sam­kvæmt honum sýna lág laun í land­bún­aði að ætl­un­ar­verk hins opin­bera hafi gjör­sam­lega mis­tek­ist ef mark­mið þess með land­bún­að­ar­styrkjum væri að auka og bæta vel­ferð þeirra sem vinna við grein­ina. Enn fremur bætir hann við að ekki sé hægt að kenna lágum styrkjum um, þar sem þeir séu mjög háir í alþjóð­legu sam­hengi.

Auglýsing

Styrkir sam­bæri­legir útgjöldum í félags­þjón­ustu

Land­bún­að­ar­styrkirnir eru mis­háir eftir sveit­ar­fé­lög­um, en sam­kvæmt grein Þór­ólfs fær sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður hæstu styrk­ina. Á árunum 2014-2019 fékk sveit­ar­fé­lagið að með­al­tali rúman millj­arð króna í styrki ár hvert, sem jafn­gildir því að hið opin­bera kosti tæp­lega 400 störf þar. Til við­mið­unar segir Þórólfur að sveit­ar­fé­lagið varði 900 millj­ónum króna í útgjöld í félags­þjón­ustu og tveimur millj­örðum króna í fræðslu og upp­eld­is­mál.

„Það má því álykta að hið opin­bera leggi 30 aura til auk­innar vel­ferðar kúa og kinda fyrir

hverja krónu sem lögð er til vel­ferðar barna og ann­arra íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Ein­hver myndi segja að þar sé nokkuð mis­skipt og áherslu­breyt­inga þörf,“ segir hann í grein­inni.

Kemur ekki í veg fyrir fólks­fækkun

Þórólfur segir einnig að land­bún­að­ar­styrkir hafi alls ekki komið í veg fyrir fólks­fækkun á lands­byggð­inni, til að mynda hafi íbúum í sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði fækkað um 325 milli áranna 1998 og 2019. Þró­unin hefur verið svipuð í öðrum sveit­ar­fé­lög­um, sér­stak­lega ef litið er til íbúa í dreif­býli og segir Þórólfur því að styrkirnir virð­ast hafa lítil sem engin áhrif til örv­unar eða við­halds atvinnu í bænda­stétt­inni.

Hægt er að lesa grein Þór­ólfs í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent