Segir lítinn samhljóm á milli fjármálastefnu og stjórnarsáttmála

ASÍ segir að fjármálastefna ríkisstjórnar byggi á því að velferðarkerfið verði notað sem helsta hagstjórnartækið á næstu árum. Að mati samtaka getur slík stefna aldrei orðið grundvöllur fyrir stöðugleika á vinnumarkaði.

Alþýðusamband Íslands - ASÍ
Auglýsing

Boðað aðhald í fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar getur aldrei orðið grund­völlur fyrir stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði eða til að ná mark­miðum um vel­sæld og úrbætur á sviði vel­ferð­ar­mála. Þetta segir Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) í mán­að­ar­yf­ir­liti sam­tak­anna, sem birt­ist í dag.

Sam­kvæmt yfir­lit­inu er lít­ill sam­hljómur á milli fjár­mála­stefn­unnar og stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þar sem sú fyrr­nefnda boðar aukið aðhald til að stöðva vöxt skulda­hlut­falls­ins en sú síð­ar­nefnda boðar betri almanna­þjón­ustu og skatta­lækk­an­ir.

ASÍ segir lík­legt að rík­is­stjórnin stefni því að því að auka útgjöld eða lækka skatta ef afkoma verður betri en búist er við vegna betri fram­vindu í efna­hags­mál­um. Þessar áherslur eru að mati sam­tak­anna gagn­rýni­verð­ar, sér í lagi ef skattar eru lækk­aðir í efna­hags­legri upp­sveiflu þegar jákvæð afkoma skýrist öðru fremur af tekjum sem séu ekki lík­legar til að halda til lengri tíma.

Vilja hærri skatta í stað nið­ur­skurðar

Sam­kvæmt sam­tök­unum hafa skatta­lækk­anir á tíma­bil­inu 2013-2019 þrengt veru­lega að stöðu rík­is­sjóðs og fjár­mögnun sam­fé­lags­legra inn­viða ekki verið tryggð með full­nægj­andi hætti.

Auglýsing

Í grein­ar­gerð­inni sam­hliða fjár­mála­stefn­unni kemur þó fram að unnið verði að end­ur­bótum á skatt­kerf­inu þannig að tekju­öflun hins opin­bera nægi til þess að standa undir verk­efnum þess. ASÍ segir hins vegar að ekki sé ljóst hvað felist í þessum end­ur­bót­um, þar sem stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar boðar bæði efl­ingu almanna­þjón­ustu og skatta­lækk­un.

Hins vegar benda sam­tökin á að stórar áskor­anir séu framundan í opin­berum fjár­mál­um, þar sem búist er við minni hag­vexti til langs tíma í fram­tíð­inni, en auk­inni útgjalda­þörf.

„Í fjár­mála­stefnu er ekki að finna skýra stefnu­mörkun um hvernig brugð­ist verði við þeim stóru áskor­unum sem hag­kerfið stendur frammi fyr­ir,“ bætir ASÍ við. „Þvert á móti fæst ekki séð hvernig fjár­mála­stefn­an, með veikan tekju­grunn og litlar fjár­fest­ingar stuðli við fram­leiðni­vöxt og mæti útgjalda­þörf vegna öldr­unar þjóð­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent