Málefni hinsegin fólks var ofarlega í huga Jódísar Skúladóttur þingmans Vinstri grænna á alþjóðadegi gegn hómó-, tví og transfóbíu þann 17. maí síðastliðinn.
Í ræðu sinni undir liðnum störf þingsins á Alþingi sagði hún að í orðabók væru þessi hugtök, hómó-, tví og transfóbía, skilgreind sem öfgakennd og órökrétt óbeit eða andstyggð á sam- eða tvíkynhneigðum eða trans fólki.
„Að mörgu leyti er staða hinsegin fólks góð á Íslandi og fer batnandi ár frá ári undir stjórn ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Það er mikið gleðiefni að Ísland hefur færst upp um fimm sæti á milli ára á regnbogakorti ILGA-Europe og áfram höldum við með aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022 til 2025 sem forsætisráðherra lagði fram á þessu þingi og tekur á mikilvægum réttarbótum fyrir hinsegin fólk,“ sagði hún.
Árið 2021 ofbeldisfyllsta ár gagnvart trans fólki frá því að mælingar hófust
Jódís bætti því við að staðan væri ekki alls staðar jafn góð og vildi hún sérstaklega varpa ljósi á alvarlega stöðu trans fólks í heiminum.
Hún benti á að á árinu 2021 hefðu 375 trans manneskjur verið myrtar í heiminum og hækkaði sú tala frá fyrra ári. Samkvæmt alþjóðlegri skýrslu sem gefin er út ár hvert, „Trans murder monitoring report“, er árið 2021 mannskæðasta og ofbeldisfyllsta ár gagnvart trans fólki frá því að mælingar hófust.
„En áttum okkur líka á samhengi hlutanna. 96 prósent af þeim myrtu voru trans konur, af því að ofbeldi er líka kynjað, 58 prósent þeirra myrtu voru þolendur vændis, fjórir af hverjum tíu voru innflytjendur. Morðin eru framin um allan heim. Ný tilfelli frá Grikklandi, Kasakstan og Malaví voru tilkynnt árið 2021, en Suður-Ameríka sker sig sérstaklega úr hvað varðar fjölda og eru 33 prósent allra morða á trans fólki framin í Brasilíu,“ sagði hún.
Vakti hún athygli þingmanna á þessari stöðu og sagði að aldrei væri hægt að aðskilja þau nánu tengsl sem væru á milli hatursglæpa, vændis, kvenhaturs, rasisma, útlendingahaturs og svo framvegis.
„Hinsegin fólk sem fellur undir hatt fleiri minnihlutahópa er útsettara fyrir ofbeldi en annað hinsegin fólk og því getum við aldrei gefið afslátt í neinum af þessum málaflokkum,“ sagði hún að lokum.
Þingmaðurinn uppskar „heyr heyr“ úr þingsal við lok ræðunnar.