Segir núverandi ástand ekki vera kreppu

Doktor í fjármálum segir að Íslendingar virðast hafa sloppið við kreppu í þetta skiptið. Hins vegar sé áhyggjuefni hvað atvinnuleysi hefur aukist mikið hérlendis, ef miðað er við nágrannalönd.

Kynning ríkisstjórnarinnar á öðrum aðgerðarpakka vegna efnahagsafleiðinga COVID-19
Kynning ríkisstjórnarinnar á öðrum aðgerðarpakka vegna efnahagsafleiðinga COVID-19
Auglýsing

Þrátt fyrir efna­hags­á­fallið sem útbreiðsla COVID-19 hafði í för með sér í fyrra erum við ekki stödd í kreppu hér­lend­is, sam­kvæmt Ásgeiri Brynj­ari Torfa­syni, doktor í fjár­mál­um.

Í grein Ásgeirs Brynjars í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ing­ar, sem kom út á föstu­dag­inn, fer hann yfir skil­grein­ingu á kreppu og hvers vegna hug­takið ætti ekki við í núver­andi ástandi. Venju­lega sé talað um kreppu þegar lands­fram­leiðsla dregst saman tvö ár í röð eða þegar sam­drátt­ur­inn nemur meira en 10 pró­sentum á einu ári. Þar sem hvor­ugt hefur gerst hér­lendis eru Íslend­ingar ekki staddir í kreppu enn.

Sam­kvæmt Ásgeiri kom auk­inn halla­rekstur hins opin­bera í fyrra í veg fyrir heimskreppu, en Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum hélt því fram í síð­ustu viku að sam­drátt­ur­inn í lands­fram­leiðslu á heims­vísu hefði orðið meiri en 10 pró­sent í fyrra ef ekki hefði verið fyrir aðgerðir hins opin­bera.

Auglýsing

Ásgeir segir þó að lyk­il­máli skipti hvar aðgerðum hins opin­bera sé beitt í stað stærðar þeirra í pen­ingum talið og að það eigi að vera meg­in­verk­efni stjórn­valda að halda uppi atvinnustig­inu. Sam­kvæmt honum hefur það tek­ist illa hingað til hér­lend­is, þar sem landið er í sér­flokki bæði hvað varðar aukn­ingu atvinnu­leysis og það hversu erfitt hefur reynst að ná því niður á síð­ustu árum. Þessi þróun er áhyggju­efni að mati Ásgeirs Brynjars, sér­stak­lega í ljósi þess að rík­is­stjórnin hefur nú þegar brugð­ist við með umfangs­miklum aðgerð­um.

Lík­leg skýr­ing á mik­illi aukn­ingu atvinnu­leysis hér­lendis er sam­setn­ing vinnu­mark­að­ar­ins og stærð ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu, segir Ásgeir. Aftur á móti telur hann skorta raun­veru­leg gögn sem sýni fram á gildi þess að minni hækkun launa muni minnka atvinnu­leysið, eins og oft hafi verið haldið fram. Þrátt fyrir að hlut­deild launa í þjóð­ar­fram­leiðsl­unni auk­ist séu tengsl þess við atvinnu­leysið óljós.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent