Segir ríkisstjórnina beita hótunum í samningaviðræðum um ÍL-sjóð

Þingmaður Viðreisnar segir fjármála- og efnahagsráðherra beita hótunum í samningaviðræðum um ÍL-sjóð. Forsætisráðherra segir nokkra valkosti í stöðunni, en engan góðan.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­ar­dótt­ir, þin­maður Við­reisn­ar, segir Bjarna Bene­diksts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefja við­ræður um mál­efni ÍL-­sjóðs með hótun af hálfu rík­is­stjórn­a­innar með því að segja að ef eig­endur bréfa í sjóðnum gangi ekki til samn­inga við ráð­herra muni hann beita laga­setn­ingu til að setja sjóð­inn í þrot.

Þor­björg, auk Loga Ein­ars­son­ar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, beindu fyr­ir­spurnum sínum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun að Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og spurðu hana hvort hún sé sam­mála þeirri leið sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vill fara í málum ÍL-­sjóðs og hvort hún hafi verið með í þeim ráð­um.

Auglýsing
ÍL-sjóður, sjóður sem stofn­aður var árið 2019 þegar Íbúða­lána­sjóði var skipt upp, mun að óbreyttu tapa 200 millj­örðum króna og standa stjórn­völd frammi fyrir þeirri ákvörðun hver eigi að greiða það tap. Almenn­ingur í gegnum rík­is­sjóð eða almenn­ingur í gegnum líf­eyr­is­sjóði.

Hægt er að lesa um það sem ÍL-­­sjóðs málið snýst um hér, í frétta­­skýr­ingu Kjarn­ans sem birt­ist á mán­u­dag.

„Nú stendur almenn­ingur frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort hann eigi að borga í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina sína eða rík­is­sjóð­inn sinn fyrir hag­stjórn­ar­mis­tök Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks í byrjun ald­ar­inn­ar,“ sagði Logi á Alþingi í morgun þegar hann beindi fyr­ir­spurn sinni að for­sæt­is­ráð­herra.

Telur hags­muni skatt­greið­enda og líf­eyr­is­þegar geta farið saman

Katrín sagði málið vissu­legu hafa verið rætt í rík­is­stjórn og sagði hún mik­il­vægt að ræða skýrsl­una um mál­efni ÍL-­sjóð, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í síð­ustu viku, á þing­inu. „Það er kannski það sem mér finnst mik­il­væg­ast í þessu máli, það skiptir máli að vanda til verka því að þetta eru miklir hags­mun­ir,“ sagði Katrín.

For­sæt­is­ráð­herra sagði hóp kröfu­hafa fjöl­breytt­an, þó líf­eyr­is­sjóðir væru vissu­lega stærsti hluti þeirra. Telur hún að vel verði haldið á málum geti hags­munir skatt­greið­enda og líf­eyr­is­þega farið saman við lausn máls­ins. „Með því einmitt að haga þessu upp­gjöri tím­an­lega þýðir það ekki sjálf­krafa tap líf­eyr­is­sjóð­anna heldur hafa þeir tæki­færi til þess að ná fram við­un­andi ávöxtun á þá fjár­muni sem þarna um ræð­ir. Þetta eru nú helstu sér­fræð­ingar okkar í því að ávaxta eignir sín­ar.“

Katrín sagði ábyrgð stjórn­valda mikla. „Við erum auð­vitað að tala um mikla fjár­muni sem munu ann­ars, að öllu óbreyttu, ef ekk­ert verður gert, falla á kom­andi kyn­slóð­ir.“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Mynd: Bára Huld Beck

Sann­gjarnt að elli­líf­eyr­is­þegar borgi fyrir ævin­týri óreiðu­stjórn­mála­manna?

Logi spurði í fram­hald­inu hvort for­sæt­is­ráð­herra finn­ist það sann­gjarnt að elli­líf­eyr­is­þegar þurfi að borga fyrir „æv­in­týri óreiðu­stjórn­mála­manna“?

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín sagði að gera megi vænt­ingar um að sam­komu­lag náist um upp­gjör og í fram­hald­inu hafi líf­eyr­is­sjóð­irnir færi á að ávaxta fé sitt þannig að til þess þurfi ekki að koma að þetta bitni á elli­líf­eyr­is­þeg­um. „En ég trúi ekki öðru en að hátt­virtur þing­maður sé sam­mála mér um það að ef ekk­ert er að gert þá fellur þessi reikn­ingur á kom­andi kyn­slóðir og ég vil ekki að við hér sem sitjum á Alþingi nú berum ábyrgð á þeim reikn­ing­i,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Þor­björg Sig­ríður gagn­rýndi fram­setn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á málum ÍL-­sjóðs fyrir helgi og sagði að í henni hafi falist hót­un, að ef eig­endur bréf­anna ganga ekki til samn­inga við fjár­mála­ráð­herra þá muni hann beita laga­setn­ingu til að setja sjóð­inn í þrot.

„Þá er stóra spurn­ing­in: Í hvaða samn­ings­stöðu eru menn í við­ræðum sem hefj­ast með hótun af hálfu rík­is­stjórnar Íslands?“ sagði Þor­björg Sig­ríð­ur, sem spurði í kjöl­farið for­sæt­is­ráð­herra hvort henni hugn­að­ist þessi aðferða­fræði, að hefja samn­inga­við­ræður með beinum hót­unum af hálfu rík­is­stjórnar Íslands?

Eng­inn góður val­kostur í stöð­unni

Katrín sagð­ist ekki geta litið á málið sem hót­un. Nokkrir val­kostir eru í stöð­unni að hennar mati, en eng­inn þeirra er góð­ur.

„Hér hefur verið rætt að það sé æski­legt að við getum hafið sam­tal við eig­endur bréf­anna um að ná mögu­lega ein­hverju sam­komu­lagi. Það fynd­ist mér eðli­legt fyrsta skref í þessum mál­u­m.“

Þor­björg Sig­ríður sagði engin svör heyr­ast um afstöðu Vinstri grænna um hvernig eigi að leysa mál­ið. „Tveir flokkar eiga þetta klúður skuld­laust, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokk­ur, en eins og venju­lega er það for­sæt­is­ráð­herra sem situr uppi með höf­uð­verk­inn og hún er ekki öfunds­verð af því.“

„Ég hef engar skýr­ingar heyrt á því hvers vegna ekki var hægt að hefja sam­tal við samn­ings­að­ila án þess að blása fyrst í her­lúðra, án þess að beita hót­un­um, án þess að stilla upp við vegg,“ sagði Þor­björg Sig­ríð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent