Segir ríkisstjórnina hafa sofið á verðinum í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi

Þingmaður Samfylkingar gerði Kompásþátt um skipulagða glæpastarfsemi að umtalsefni sínu á þingi og sagði að auka þyrfti fjárveitingar til löggæslu í landinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokks tók undir varnaðarorð en sagði margt hafa verið gert í málaflokknum.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, skoraði á ríkisstjórnina að bregðast við skipulagðri glæpastarfsemi.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, skoraði á ríkisstjórnina að bregðast við skipulagðri glæpastarfsemi.
Auglýsing

Auka þarf fjár­veit­ingar til almennrar lög­gæslu að mati Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. „Enda hefur lög­reglu­mönnum fækkað mikið þrátt fyrir aukin og flókn­ari verk­efn­i,“ sagði Helga Vala í þing­inu í dag en hún gerði lög­gæslu að umfjöll­un­ar­efni sínu í ræðu sinni í umræðum um störf þings­ins.

„Rík­is­stjórnin hefur sofnað á verð­inum þegar kemur að því að tryggja öryggi borg­ar­anna og berj­ast gegn skipu­lögðum glæp­um. Er það í besta falli kæru­leysi en í versta falli afglöp rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þetta varðar manns­líf, herra for­seti, öryggi borg­ar­anna og heil­brigt sam­fé­lag,“ sagði Helga Vala en hún hafði áður bent á að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segði að öflug lög­gæsla væri ein af for­sendum þess að öryggi borg­ar­anna sé tryggt.

Auglýsing

Helga Vala vís­aði í Komp­ásþátt Vísis sem fjall­aði um mann­drápið í Rauða­gerði. „Mar­geir Sveins­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá mið­lægri rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir þar aðspurður að lög­reglan hafi að sjálf­sögðu viljað vakta ferðir ein­stak­lings sem grun­aður var um að bera skamm­byssu með hljóð­deyfi, en að lög­reglu skorti hvort tveggja mann­afla og tíma til að geta sinnt slíkum verk­efn­um. Maður ferð­ast sem sagt um landið vopn­aður skamm­byssu með hljóð­deyfi með vit­neskju lög­reglu sem getur ekki aðhafst vegna fjár­skorts,“ sagði Helga Vala.

Hún skor­aði á rík­is­stjórn­ina að bregð­ast við áður en það yrði um sein­an.

Margt verið gert til að stemma stigu við glæp­a­starf­semi

Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði fulla ástæðu til taka undir við­vör­un­ar­orð Helgu Völu í ræðu sinni undir sama dag­skrár­lið. Hann sagði það vera rétt sem komið hefði fram hjá lög­reglu­yf­ir­völdum að skipu­lögð glæp­a­starf­semi væri vax­andi vanda­mál.

Birgir Ármansson þingmaður Sjálfstæðisflokks og þingflokksformaður flokksins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Hins vegar held ég að rétt sé að halda því til haga að rík­is­stjórnin hefur ekki, eins og hátt­virtur þing­maður lét í veðri vaka, setið aðgerða­laus og látið þessa þróun eiga sér stað án þess að bregð­ast við með ein­hverjum hætti. Það er langt því frá,“ sagði Birgir í kjöl­far­ið.

Hann sagði að fjallað hefði verið um þessi mál á vett­vangi alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar. Farið hafi verið í sér­stakt átak til að auka sam­vinnu lög­reglu­emb­ætta auk þess sem auknu fjár­magni hafi verið varið í rann­sóknir á þessu sviði. Í þriðja lagi hefðu verið gerðar ýmsar breyt­ingar á lög­gjöf á þessu sviði.

„Hér hafa verið laga­breyt­ingar sem hafa falið í sér breyt­ingar sem varða pen­inga­þvætti, vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í lög­gæslu­skyni, fram­sal saka­manna. Við hér í þing­inu erum með breyt­ingu á lög­reglu­lögum sem meðal ann­ars á að svara þörf að þessu leyti. Við erum að breyta Schen­gen-­reglum til að auð­velda okkur að nýta upp­lýs­inga­kerfi í þessu skyni og svo má lengi telja,“ sagði Birgir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent