Segir stöðugleikaframlag ekki fela í sér afslátt af skatti

18417150919_8ced912150_k-1.jpg
Auglýsing

Bene­dikt Árna­son, efna­hags­ráð­gjafi Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, segir það rangt að slitabú föllnu bank­anna njóti afsláttar af stöð­ug­leika­skatti ef þau greiða stöð­ug­leika­fram­lag í stað­inn. Þetta segir Bene­dikt í svari við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins til for­sæt­is­ráð­herra vegna umsagnar InDefence-hóps­ins um frum­varp um stöð­ug­leika­skatt. Það er mat hóps­ins að tryggja eigi að samn­ingar um mæt­ingu stöð­ug­leika­skil­yrðum skili jafn miklu í rík­is­kass­ann og stöð­ug­leika­skatt­ur, en fram hefur komið að skatt­ur­inn verður slita­bú­unum dýr­ari en samn­inga­leið­in. Um 400 millj­arða króna tekju­munur er sagður vera á leið­un­um.

Bene­dikt segir í svari til Frétta­blaðs­ins að um sé að ræða tvær ólíkar en jafn­gildar aðferðir út frá hags­munum þjóð­ar­bús­ins. Skatt­ur­inn sé ein­skiptis ráð­stöfun sem taki mið af stöðu hvers skatt­að­ila um næstu ára­mót en taki aftur á móti ekki til­lit til áhættu þjóð­ar­bús­ins vegna virð­is­breyt­inga á eignum slita­bú­anna til fram­tíð­ar. „Ólíkt skatt­inum draga stöð­ug­leika­skil­yrðin úr þess­ari greiðslu jöfn­uð­ar­á­hættu til fram­búð­ar,“ segir hann. Skatt­ur­inn geti gefið fleiri krónur í rík­is­kass­ann en stöð­ug­leika­skil­yrðin dragi veru­lega úr lengri tíma áhættu.

InDefence-hóp­ur­inn hefur verið mjög áber­andi í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Hóp­ur­inn varð fyrst til í októ­ber 2008 þegar nokkrum ein­stak­lingum ofbauð fram­ganga breskra stjórn­valda gagn­vart Íslandi þegar landið beitti hryðju­verkarlögum gegn Íslandi vegna banka­hruns­ins. InDefence barð­ist síðan hat­ramm­lega gegn Ices­a­ve-­samn­ing­unum og stóð meðal ann­ars fyrir und­ir­skrift­ar­söfn­unum gegn sam­þykkt þeirra.

Auglýsing

Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður hans, voru áber­andi í starfi InDefence hér á árum áður. Sig­urður Hann­es­son, einn vara­for­manna fram­kvæmda­hóps um losun hafta, sem vann til­lögur um stöð­ug­leika­skil­yrði og mögu­legan stöð­ug­leika­skatt, kom einnig að starfi hóps­ins. Sig­urður er einn nán­asti efna­hags­ráð­gjafi og trún­að­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra. Hann tekur auk þess virkan þátt í flokks­starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None