Segir ummæli Jóns Steinars ekki svaraverð

Screen-Shot-2014-12-02-at-14.29.07.png
Auglýsing

Björg Thoraren­sen, pró­fessor við Laga­deild Háskóla Íslands, segir ummæli Jóns Stein­ars Gunn­laugs­son­ar, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, sem hann lét falla í sjón­varps­þætt­inum Eyj­unni á sunnu­dag ekki svara­verð.

Jón Steinar tengdi það sem hann kallar aðfar­irnar að Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra vegna leka­máls­ins svo­kall­aða, við gremju rétt­ar­fars­nefndar í kjöl­far þess að Hanna Birna skip­aði þriggja manna nefnd til að skrifa frum­varp að nýjum dóm­stóla­lög­um. Jón Steinar sagði í áður­nefndu við­tali að Eiríkur Tóm­as­son, hæsta­rétt­ar­dóm­ari og for­maður rétt­ar­fars­nefnd­ar, og aðrir nefnd­ar­menn hefðu „tryllst“ vegna þessa, þar sem þeim hafi fund­ist að ráð­herra hefði snið­gengið þá við skipun nefnd­ar­inn­ar.

Hæsta­rétt­ar­dóm­arar sem öllu vilja ráða



Þá taldi Jón Steinar frá­leitt að hæsta­rétt­ar­dóm­arar eigi sæti í rétt­ar­fars­nefnd Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, þeirra hlut­verk ætti fyrst og síð­ast að fel­ast í því að sinna sínum störfum í Hæsta­rétti Íslands.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum af heima­síðu Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er rétt­ar­fars­nefndin inn­an­rík­is­ráð­herra til ráð­gjafar um samn­ingu frum­varpa og ann­arra reglna á sviði rétt­ar­fars, semur frum­vörp og aðrar reglur að beiðni ráð­herra á því sviði og í sam­ræmi við áætlun og áherslur ráð­herra, og veitir umsagnir um frum­vörp og aðrar til­lögur er varða rétt­ar­far.

Auglýsing

Eiríkur Tóm­as­son sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær, að hann ætli ekki að tjá sig um ummæli Jóns Stein­ar­s. „Ég ætla ekki að fara að standa í orða­hnipp­ingum við Jón Stein­ar.“

Sak­aði háskóla­pró­fessor um óheil­indi



Í áður­nefndu sjón­varps­við­tali full­yrti Jón Stein­ar að inn­an­rík­is­ráð­herra hefði, með skipun nefnd­ar­innar sem á að skrifa frum­varp að nýjum dóm­stóla­lög­um, komið við kaun­inn á þeim sem öllu vilji ráða í dóms­málum lands­ins.

„Hanna Birna gerði það, sem að vissir menn töldu að hún ætti ekki að gera, hún skip­aði nefnd ein­hvers fólks í það að skrifa nýtt frum­varp að dóm­stóla­lög­um, og ákveðnir menn sem stjórna og vilja ráða öllu í dóms­mál­un­um, þeir urðu reið­ir. Og svo tók ég eftir því í fyrra­sum­ar, að það voru tekin við­töl við fólk sem tengd­ist þess­ari klíku mjög sko, meðal ann­ars pró­fessor í Háskóla Íslands, sem vill svo til að er eig­in­kona for­seta Hæsta­rétt­ar, og hvað hafði hún að segja: að ráð­herr­ann yrði að fara frá, út af þessu máli. [...] Þetta setur að mér óhug, þetta er ekki eðli­leg­t.“

Aðspurður um hvort Jón Steinar hafi átt við Björgu Thoraren­sen, pró­fessor við Laga­deild Háskóla Íslands, með orðum sínum kvað hann svo vera. Björg er eig­in­kona Mark­úsar Sig­ur­björns­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara og for­seta Hæsta­réttar Íslands.

Í skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarn­ans til Bjarg­ar, um hvort hún hygg­ist bregð­ast við ummælum Jóns Stein­ars, svar­aði hún: „Sæll vertu, nei það hef ég ekki, enda ekki svara vert.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None