Segist ekki hafa boðist til að hætta við framboð gegn því að fá fjármálaráðuneytið

Harka er hlaupin í formannsslaginn í Sjálfstæðisflokknum. Innherji heldur því fram að Guðlaugur Þór hafi gert kröfur um verða fjármálaráðherra gegn því að bjóða sig ekki fram, en að Bjarni Benediktsson hafi hafnað því. Ósatt, segir Guðlaugur Þór.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, segir full­yrð­ingar sem settar eru fram í frétt Inn­herja, und­ir­vefs á Vísi sem fjallar um efna­hags­mál og við­skipti, þess efnis að hann hafi gert kröfur til Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í skiptum fyrir að hætta við for­manns­fram­boð í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, vera ósann­ar. 

Í frétt Inn­herja sagði að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefði greint Bjarna frá því að hann væri til­bú­inn að sleppa því að bjóða sig fram gegn honum á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks um kom­andi helgi ef Bjarni myndi eft­ir­láta honum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið. Þessi krafa á að hafa verið sett fram á fundum sem þeir áttu á fimmtu­dag og föstu­dag í síð­ustu viku. 

Guð­laugur Þór hafnar þessi í færslu á Face­book í dag. Þar segir hann Bjarna hafa vitað af áhyggjum hans um stöðu mála í flokkn­um. „Ég er alltaf að hugsa um flokk­inn minn og tel engan einn mann stærri en flokk­inn. Það er rétt að við Bjarni hitt­um­st, hann bauð mér í fjár­mála­ráðu­neytið á fimmtu­dags­kvöldi og á heim­ili sitt á föstu­dag­inn var. Þar ræddum við að sjálf­sögðu stöð­una sem upp var kom­in, en öllum má vera ljóst að hann hafði áhyggjur af henn­i.“

Aðrar full­yrð­ingar í frétt Inn­herja séu þó rang­ar. „Það er alls­endis ósatt að á þessum fundum hafi ég gert ein­hverjar kröfur til Bjarna Bene­dikts­sonar í skiptum fyrir að hætta við for­manns­fram­boð.“

Vegna fréttar Inn­herja á Vísi um að ég hafi gert kröfu um fjár­mála­ráðu­neyt­ið, gegn því að hætta við að bjóða mig fram...

Posted by Guð­laugur Þór Þórð­ar­son on Monday, Oct­o­ber 31, 2022

Ýmsar útgáfur af því sem fram fór á fundum fyrir helgi

Guð­laugur Þór til­­kynnti í hádeg­inu í gær að hann myndi bjóða sig fram gegn Bjarna á kom­andi lands­fund­i. Fram­boðið hafði legið í loft­inu í nokkra daga og spurst hafði út að menn­irnir tveir hefðu fundað undir lok síð­ustu viku til að kanna hvort önnur lausn væri á stöð­unni en for­manns­slag­ur.

Auglýsing
Afar mis­mun­andi sögur fara af þeim fund­um. Þeir sem styðja Guð­laug Þór segja að þar hafi Bjarni lagt fram mála­miðl­un­ar­til­lögur sem auki áhrif Guð­laugs Þórs í flokkn­um, eða að hann hafi sam­þykkt ýmsar kröfur sem Guð­laugur Þór hafi gert um stóla og stöð­ur. Þeir sem styðja Bjarna segja aðra sögu. Þá sem sögð var í frétt Inn­herja, að Guð­laugur Þór hefði gert kröfur um ráðu­neytið og emb­ætti innan flokks­ins en að Bjarni hefði hafnað þeim.

Guð­laugur Þór, sem verður 55 ára í des­em­ber, hefur setið á þingi frá árinu 2003 og gegnir nú emb­ætti umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Bjarni hefur verið for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins frá 2009 og hefur í tvígang fengið mót­fram­­boð síðan þá, árið 2010 þegar Pétur Blön­dal bauð sig fram og ári seinna þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir bauð sig fram gegn hon­­um.

Bjarni hefur gefið það út að tapi hann fyrir Guð­laugi Þór í for­­manns­­kjör­inu ætli hann að hætta í stjórn­­­málum. „Ef að mínum tíma sem for­­­manni lýkur í þessu kjöri þá er mínum tíma í stjórn­­­­­málum bara lok­ið. Það er ekk­ert flókn­­­ara en það,“ sagði Bjarni á Sprengisandi á Bylgj­unni í gær­morg­un.

Átök tveggja fylk­inga

Ljóst er að tvær fylk­ingar innan flokks­ins munu takast á, fylk­ingar sem hafa átt í inn­­­­­byrðis átökum um ítök og áhrif árum sam­an án þess að hafa barist á um æðstu emb­ættin í flokkn­­­um.

Um er að ræða þá fylk­ingu sem fylgir Guð­laugi Þór að málum og þá sem hverf­ist í kringum Bjarna.

Fylk­ing Guð­laugs Þórs hefur tek­ist hart á við hina þegar valið hefur verið á fram­­­boðs­lista flokks­ins í síð­­­­­ustu tveimur borg­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ingum og í próf­­­kjör­inu fyrir síð­­­­­ustu þing­­­kosn­­­ing­­­ar. Færa má rök fyrir því að fylk­ing Guð­laugs Þór hafi sigrað í tveimur af þeim lot­um, fyrir kosn­­­ing­­­arnar 2018 og 2021, og haft ívið betur í þeirri þriðju, þegar próf­­­kjör ákvað lista flokks­ins fyrir síð­­­­­ustu borg­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­ar.

Hingað til hefur Guð­laugur Þór valið að sýna þol­in­­­mæði í for­mennsku­metn­aði sínum og sagt út á við að hann styðji for­yst­una eins og hún er. Taktíkin hefur gengið út á að reyna að bíða for­­­mann­s­­­tíð Bjarna Bene­dikts­­­sonar af sér.

En þegar Bjarni til­­­kynnti í ágúst að hann ætl­­­aði að sækj­­­ast eftir áfram­hald­andi for­­­mennsku þurfti Guð­laugur Þór að end­­ur­­meta aðferða­fræði sína. Það hefur hann nú gert og mun hann etja kappi við Bjarna um emb­ætti for­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins á lands­fundi flokks­ins sem fer fram næstu helgi.

Lands­fund­­ur­inn sá fyrsti frá því í mars 2018. Tvö þús­und lands­fund­­ar­­full­­trú­­ar, víða að á land­inu, eiga sæti á fund­inum og hafa kosn­­inga­rétt í kjöri til for­­manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent