„Ég skal viðurkenna það að ég átti mjög erfitt eftir að ég tók þessa ákvörðun og var við það að brotna niður. Ekki vegna þess að ég fengi ekki meiri völd, heldur að sjá á eftir tækifærinu sem við höfðum til að verða ósigrandi.“ Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í færslu á Facebook um ástæðu þess að hann ákvað að draga til baka framboð sitt til forseta Alþýðusambands Íslands (ASÍ) fyrr í dag.
Draumur hans og markmið hafi verið að sameina hreyfinguna fyrir fólkið innan hennar og fólkið í landinu. „Ná árangri og breyta til hins betra. En fyrir þeim er ekki ótakmörkuð innistæða. Sérhagsmunaöflin sem við erum að berjast á móti eru hrikaleg og mun ósvífnari og skipulagðari heldur en flestir gera sér grein fyrir. Þess vegna byggjast möguleikar okkar og árangur á samstöðu. En allt hefur sín mörk og stundum sigrar hatrið eins og segir í textanum. Hatrið sigraði mig í dag. Samvinna og samstaða er val, sömuleiðis átök og sundrung.“
Í færslunni rekur Ragnar Þór að fyrir kjarasamninganna 2019 hafi honum og fjölskyldu hans borist alvarlegar hótanir. „Hótanir sem hægt var að rekja til þeirrar orðræðu sem var á þeim tíma, þið munið, við vorum stórhættulegt og kolruglað fólk með sturlaðar kröfur sem legði hagkerfið í rúst og allt það.“
Um síðustu mánaðamót, samhliða aukinni neikvæðri athygli sem beindist að honum með tilheyrandi áreiti, hafi aftur farið að bera á alvarlegum hótunum. Ég tala ekki mikið um þetta og ég læt alltof sjaldan vita af því. Guðbjörg konan mín tekur þetta mjög nærri sér, eðlilega því við erum með ung börn á heimilinu.“
Ótrúlega ósmekkleg orðræða
Fyrir síðustu samninga sem undirritaðir voru 2019 hafi nokkur stéttarfélög myndað bandalag og náð, að hans mati, mjög góðri niðurstöðu við erfiðar aðstæður. „Margþættar kjarabætur í bland við aðgerðarpakka stjórnvalda. Ef okkur tókst þetta í smærri hóp hugsaði ég sem svo, hversu miklu getum við náð ef við stöndum saman sem enn breiðari fylking og á vettvangi ASÍ? Við verðum óstöðvandi og við munum ná gríðarlegum árangri fyrir okkar fólk. Við vorum byrjuð á þessari vinnu á óformlegum vettvangi ASÍ þar sem saman komu landssambönd verslunarfólks, starfsgreinasambandsins og iðnaðarmanna. Í þau 14 ár sem ég hef starfað innan hreyfingarinnar hef ég sjaldan fundið jafn góðan anda innan ólíkra hópa. Við vorum að hefja vinnu við það hvernig við gætum sameinast um ólíkar áherslur og var ég afar bjartsýnn fyrir þingið um að okkur tækist raunverulega að leiða okkur saman.“
Ragnar Þór segist oft hafa talað um mikilvægi samstöðu ólíkra hópa til að ná árangri. „Við erum að vinna fyrir fólkið okkar. Fólkið sem treystir okkur fyrir að bæta lífskjörin. Þau öfl sem hafa viljað okkur burt hafa ekki talað einu orði um þetta. Ekki einu orði um fólkið okkar sem getur vart borgað af lánunum sínum eða húsaleiguna. Eða fjölskyldur sem geta lítið orðið gert annað en að kaupa síhækkandi nauðsynjar í 9% verðbólgu og hækkandi vöxtum. Stjórnvöld hafa svo lítið lagt til málanna annað en auknar álögur ofan á allt saman. Af hverju í ósköpunum getur umræðan ekki snúist um þetta? Af hverju þetta taumlausa hatur? Hvað höfum við eiginlega gert þessu fólki?“
Trúði því að hægt væri að snúa bökum saman
Ragnar Þór fjallar síðan nánar um ásakanir á hendur sér um ofbeldi og að þeim hafi verið slegið upp á forsíðum og með greinarskrifum, undirrituðu af fullorðnu fólki. Þar vísar hann í grein sem hópur úr ellefu verkalýðsfélögum sem tilheyra ASÍ birtu aðsenda á Vísi nýverið þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum af stjórnarháttum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og Ragnars Þórs. Á meðal þeirra sem skrifuðu undir þá grein var Ólöf Helga Adolfsdóttir, sem bauð sig fram til forseta ASÍ gegn Ragnari Þór.
Hann segir þetta vera fólk sem með réttu ættu að kallast félagar hans. „Ég er vændur um að sækjast í völd, öskri og skelli hurðum ef ég fæ ekki mínu fram og vilji reka fólk fyrir engar sakir. Þrátt fyrir að hafa tekist, ásamt stjórn VR, að skapa frábæra stemningu og liðsheild innan VR síðustu 6 ár. Þar hefur samt engum verið sagt upp og starfsánægja með því sem best þekkist. En allt þetta skiptir engu máli. Sé lygin sögð nægilega oft fer fólk að trúa henni. Trúa því að þetta sé mögulega satt.“
Ragnar Þór segist hafa farið inn á þing ASÍ með háleit markmið og einlæga von um að þar tækist að snúa bökum saman. „Ég bauð mig fram til að leiða þetta verkefni. Ekki af því að ég er sjúkur í völd heldur vegna þess að ég hafði trú á því að þetta væri hægt, í ljósi þess hversu vel okkur hefur tekist til í VR við að sameina ólík sjónarmið og vinna sem ein heild, ekki meiri eða minnihluti heldur liðsheild.“
Samningsstaðan gagnvart stjórnvöldum ekki lengur til staðar
Í morgun hafi hann fengið sent skjáskot af enn einni færslu frá formanni stéttarfélags innan ASÍ, Halldóru Sveinsdóttur formanns Bárunnar. „Í færslunni er ég enn og aftur sakaður um ofbeldi og markmið mitt sé fyrst og fremst að segja upp öllu starfsfólki. Þegar börnin mín lesa fyrirsagnir um að pabbi þeirra stundi ofbeldi og reki fólk fyrirvaralaust eða heyra því hvíslað á förnum vegi, brestur eitthvað. Ég ræddi þetta við konuna mína yfir kaffibolla í morgun, eftir að við lásum nýjustu árásina í minn garð. Árás á mína æru og persónu. Árás á miðju þingi ASÍ sem ég vonaðist til að vera vettvangur sátta. Ákváðum við í sameiningu að þetta væri ekki þess virði. Því miður.“
Ragnar Þór segist þó finna fyrir létti yfir því að vera laus úr sambandinu við ASÍ. „Ég tók ákvörðun um að velja að vinna frekar með öllu því frábæra fólki sem starfar á vettvangi VR. Ég valdi samheldni og virðingu. Okkur í VR mun örugglega takast vel til í næstu kjarasamningum þó samningsstaðan gagnvart stjórnvöldum sé ekki lengur til staðar. Ég mun gera mitt allra besta eins og alltaf fyrir félagsfólk VR. Því lofa ég. Ég ber engan kala til þess fólks sem var með yfirlýst markmið um að fella okkur á þinginu. Við þau vil ég segja. Nú erum við farin, ekki lengur fyrir. Nú fáið þið tækifæri til að leiða kjarasamninga ykkar félaga og vettvang ASÍ til að styðja við þá vegferð. Ég óska ykkur alls hins besta. Ég vona að þið nýtið tækifærið vel og náið sem bestum árangri fyrir ykkar fólk, árangri sem nýtist okkur í okkar baráttu.“
Færslu Ragnars Þórs í heild má lesa hér að neðan:
Kæru vinir. Ég tók nýverið ákvörðun um að bjóða mig fram til forseta ASÍ á þingi sambandsins sem haldið er dagana 10....
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Tuesday, October 11, 2022