Ragnar Þór dregur framboð sitt til baka

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur hætt við framboð sitt til forseta Alþýðusambands Íslands.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er hættur við fram­boð sitt til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands. Þetta herma heim­ildir mbl.is og RÚV. 45. þing ASÍ hófst í gær og kosn­ing í emb­ætti hefst eftir hádegi á morg­un.

Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, rit­ari Efl­ing­ar, er ein í fram­boði til for­seta ASÍ.

mbl.is segir Ragnar hafa vísað í stöðu­upp­færslu Hall­dóru Sveins­dótt­ur, for­manns Bár­unn­ar, þegar hann greindi frá ákvörðun sinni. Í færslu sinni á Face­book gagn­rýnir hún Ragnar harð­lega og spyr hvort að það að koma sterk út úr þing­inu þýði hreins­anir í ASÍ, aðra hóp­upp­sögn starfs­manna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar?

Auglýsing

Sam­kvæmt heilmildum Kjarn­ans hafa Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, sem gefa kost á sér í emb­ætti 2. og 3. vara­for­seta, dregið fram­boð sín til baka. Það sama á við um Hörð Guð­brands­son, for­mann Verka­lýðs­fé­lags Grinda­vík­ur. Sól­veig Anna sagð­ist í sam­tali við frétta­mann RÚV ekki ætla að mæta á þing ASÍ þegar því verður fram haldið á morg­un.

„Ég mun að sjálf­sögðu ekki mæta og ég veit ekk­ert hvað ger­ist hér á morgun á þessu þing­i,“ sagði Sól­veig Anna. Ragnar Þór gaf ekki kost á við­tali.

Drífa Snæ­­­dal sagði af sér emb­ætti for­­­seta 10. ágúst og sagði hún sam­­­skipti við ýmsa kjörna full­­­trúa innan sam­­­bands­ins og sú blokka­­­myndun sem þar hefði átt sér stað gera sér ókleift að starfa áfram sem for­­­seti.

Ragnar Þór greindi frá fram­­boði sínu um miðjan sept­­em­ber. Í sam­tali við Kjarn­ann sagði hann að í aðdrag­and­­anum hafi hann átt fundi með for­yst­u­­fólki úr aðild­­ar­­fé­lögum innan ASÍ til að kanna hvort stuðn­­ingur væri við þær hug­­myndir sem hann hefði um fram­­­tíð sam­­­bands­ins og áherslu­breyt­ingar í störfum þess næðu út fyrir þann hóp stétt­­­ar­­­fé­laga sem staðið hefðu „dá­­­lítið þétt sam­an“ og átti hann þar við stétt­­­ar­­­fé­lög í Grinda­vík, Akra­­­nesi og svo Efl­ingu stétt­­­ar­­­fé­lag.

Mót­fram­boðið kom svo í síð­ustu viku þegar Ólöf Helga til­­kynnti sitt fram­boð til for­­seta. Í fram­boðstil­kynn­ingu sinni sagði Ólöf Helga að Sól­­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­­maður Efl­ing­­ar, vilji nú í valda­­banda­lagi við Ragnar Þór Ing­­ólfs­­son og Vil­hjálm Birg­is­­son, taka yfir ASÍ. Í gegnum hóp­­upp­­sagnir á skrif­­stofu Efl­ingar fórn­­uðu þau trú­verð­ug­­leika verka­lýðs­hreyf­­ing­­ar­innar og félags­­­fólki fyrir eigin valda­hags­muni. Óljóst er hvað þrí­­eykið vill með sam­­band­ið. En það hefur komið skýrt fram að þau munu ekki hafa rúm fyrir aðrar skoð­­anir en sínar eigin og vilja stjórna í krafti meiri­hluta­ræð­­is. Allir sem mót­­mæla þeim fá yfir sig fúk­yrða­flaum – og þegar önnur sjón­­­ar­mið eru sett fram er þeim mætt með hót­­unum og offorsi.“

Einn af mögu­leik­unum að skilja sig frá ASÍ

Sól­veig Anna fór yfir sögu ágrein­ings innan ASÍ síð­ustu fjögur ár í greina­flokki á Kjarn­anum í sum­ar. Þar sagði hún meðal ann­ars að áður fyrr var ASÍ bæði breyt­ing­ar­afl fyrir rétt­læti í íslensku sam­­fé­lagi og mót­­stöð­u­afl gegn órétt­­læti. „Í dag er Alþýð­u­­sam­­band Íslands það ekki. Þvert á móti hefur sam­­bandið orðið með­­­virkt með íslenska auð­­valds­­kerf­inu, sem er ótrú­­legt í ljósi þess að ef ein­hver stofnun ætti að hafna þess konar með­­­virkni þá er það Alþýð­u­­sam­­band­ið,“ skrifar Sól­veig meðal ann­ars.

Í grein­ar­flokki sínum segir hún tvær leiðir vera færar fyrir íslenska verka­lýðs­hreyf­ingu út úr þeim vanda sem alþýðu­sam­bandið glímir við.

Ann­­ars vegar sú að Alþýð­u­­sam­­bandið horf­ist í augu við þá breyttu stöðu sem upp er kom­in, lagi sig að henni og breyti um kúrs. Farið verði í djúpa og alvar­­lega vinnu við að end­­ur­­meta stefn­una. „Ég legg til að í þeirri vinnu verði við­­ur­­kennt að verk­efni íslenskrar verka­lýðs­hreyf­­ingar er ekki lok­ið. Þvert á móti er raun­veru­­legt og stórt verk að vinna í bar­áttu við auð­­stétt­ina og sér­­hags­muna­öfl­in. Skylda sam­­bands­ins er að þróa og leiða þetta verk­efni, og vera óhrætt við að skora á hólm þær ýmsu stofn­­anir valds­ins sem standa vörð um óbreytt ástand, sama hvort það eru líf­eyr­is­­sjóð­ir, fjár­­­mála­­kerf­ið, Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eða rík­­is­­stjórn­­in. Þá þarf Alþýð­u­­sam­­bandið að við­­ur­­kenna fyrir sjálfu sér að eina vopnið sem getur leitt til árang­­urs í verka­lýðs­bar­áttu eru verk­­föll eða trú­verðug hótun um beit­ingu þeirra.“

Tak­ist ASÍ ekki að breyta um kúrs er aðeins ein önnur leið fær, að mati Sól­veigar Önnu. „Hún er sú að þau félög sem vilja starfa í verka­lýðs­hreyf­­ingu sem er raun­veru­­legt fram­fara- og mót­­stöð­u­afl skilji sig frá sam­­band­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent