Ragnar Þór ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR tilkynnti starfsfólki félagsins á fundi í morgun að hann ætli að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands á þingi sambandsins, sem fram fer dagana 10.-12. október.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR ætlar að bjóða sig fram til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á þingi sam­bands­ins sem fram fer í lok októ­ber. Ragnar Þór kynnti starfs­fólki VR þessa ákvörðun sína á fundi í morgun og var áður búinn að kynna stjórn VR um fram­boð sitt í gær­kvöldi. Hann stað­festir þetta svo sjálfur í sam­tali við Kjarn­ann.

Ragnar Þór sagði frá því í upp­hafi vik­unnar að hann ætl­aði að til­kynna hvort hann færi fram eða ekki í dag. Síð­ustu daga hefur hann átt fundi með for­ystu­fólki úr aðild­ar­fé­lögum innan Alþýðu­sam­bands­ins, til þess að kanna hvort stuðn­ingur við þær hug­myndir sem hann hefur um fram­tíð sam­bands­ins og áherslu­breyt­ingar í störfum þess næðu út fyrir þann hóp stétt­ar­fé­laga sem staðið hefðu „dá­lítið þétt sam­an“ og átti hann þar við stétt­ar­fé­lög í Grinda­vík, Akra­nesi og svo Efl­ingu stétt­ar­fé­lag.

„Ef að vilj­inn til breyt­inga nær til dæmis inn í iðn­­að­­ar­­manna­­sam­­fé­lagið og raun­veru­­legur vilji er til að rífa þetta upp og gera þetta að því afli sem þetta apparat á að vera, þá er það mjög spenn­andi verk­efni að taka að sér að leiða,“ sagði Ragnar Þór í sam­tali við Kjarn­ann á þriðju­dag.

Mun leiða gerð kjara­samn­inga í haust

Ragnar Þór, sem hefur verið for­maður VR frá 2017, stað­festir í sam­tali við Kjarn­ann að hann ætli að halda áfram að leiða stjórn VR þó að hann næði kjöri sem for­seti Alþýðu­sam­bands­ins og segir að hann muni sinna þeim verk­efnum sem lúta að kjara­samn­ingum sem for­maður stjórnar og for­maður samn­inga­nefndar félags­ins.

Hann mun hins vegar eft­ir­láta öðrum að taka við sem starf­andi for­maður VR ef svo fer að hann nái kjöri og ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem for­maður félags­ins, en kjör­tíma­bil Ragn­ars Þórs sem for­manns VR rennur sitt skeið snemma á næsta ári.

Ragnar Þór er 49 ára gam­all. Áður en hann varð for­maður VR hafði hann setið í stjórn VR frá 2009 til 2017. Hann kom að stofnun Hags­muna­sam­taka heim­il­ana árið 2009 og sat þar í stjórn, auk þess sem hann sat í stjórn Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar þegar hún bauð fram til Alþingis og fór svo sjálfur í fram­boð til Alþingis fyrir hönd stjórn­mála­aflsins Dög­unar árið 2016.

Sá eini sem hefur til­kynnt um for­seta­fram­boð

Fyrir dag­inn í dag hafði eng­inn annar til­kynnt um fram­boð til for­seta ASÍ, en und­an­farnar viku hafa nokkrir verka­lýðs­­leið­­togar úti­­lokað að þeir gefi kost á sér. Þeirra á meðal er starf­andi for­­seti ASÍ, Krist­ján Þórður Snæ­­bjarn­­ar­­son for­­maður Raf­­iðn­­að­­ar­­sam­­bands­ins, en hann gaf það út í upp­­hafi síð­­­ustu viku að hann myndi ekki sækj­­ast eftir emb­ætt­inu.

Auglýsing

Áður höfðu þau Sól­­veig Anna Jóns­dóttir for­­maður Efl­ingar og Vil­hjálmur Birg­is­­son for­­maður Starfs­­greina­­sam­­bands­ins og VLFA úti­­lokað fram­­boð til for­­seta ASÍ í sam­tölum við fjöl­miðla.

Nýr for­seti verður kjör­inn á þingi ASÍ sem fram fer dag­ana 10.-12. októ­ber á Hótel Nor­dica í Reykja­vík.

Drífa hætti vegna óbæri­legra átaka

Drífa Snæ­dal sagði af sér emb­ætti for­seta 10. ágúst og sagði hún sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefði átt sér stað gera sér ókleift að starfa áfram sem for­seti.

Í yfir­lýs­ingu sem hún birti er hún til­kynnti um brott­hvarf sitt gagn­rýndi hún for­ystu bæði Efl­ingar og VR og sagð­ist hafa þurft að „bregð­­ast við linn­u­­lausri, en óljósri gagn­rýni for­­manns VR“ á sín störf.

Fréttin hefur verið upp­færð eftir að Kjarn­inn náði tali af Ragn­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent